Leikjavísir

GameTíví spilar: „Þessi kennari er eitthvað það heitasta sem ég hef séð“

Svessi og Óli ákváðu að rifja upp menntaskólaárin og skella sér í leikinn Life is Strange. Hér skoða þeir fyrstu 15 mínútur leiksins og átti sú skoðun eftir að hafa afdrífarík áhrif, en Óli varð fljótlega ástfanginn af einum kennaranum og Svessi kastaði fram þeirri játningu að hann hafi nú ekkert verið svakalega svalur á þessum tíma.

Þeir sem vilja fræðast meira um þennan leik geta séð hverju fleiru GameTíví bræður komust að í þessu nýja innslagi sem heitir GameTíví spilar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×