Leikjavísir

GameTíví spilar: Óskundi í Goat Simulator

Samúel Karl Ólason skrifar
Óli, brjáluð geit og Svessi.
Óli, brjáluð geit og Svessi.
Í nýjasta innslagi GameTíví spila þeir bræður Svessi og Óli leikinn Goat Simulator. Þar sem Sverrir Bergmann er úr sveit og hefur þurft að tækla fjölmargar geitur um ævina þótti tilvalið að láta hann prófa hinn bráðskemmtilega leik í PS4. Óhætt er að segja að um óhefðbundinn leik sé að ræða. Hann virðist ganga út á að sleikja allt sem í vegi geitarinnar verður og stökkva á trampolínum.

Sverri tókst að valda miklum óskunda í bænum sem geit og tókst honum að sleikja fullt af mönnum, melónum og jafnvel öðrum geitum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×