Leikjavísir

GameTíví leikjadómur - Bloodborne

Samúel Karl Ólason skrifar
Svessi tók Bloodborne föstum tökum og renndi honum í gegnum einn GameTíví dóm. Leikurinn Bloodborne er frá þeim sömu og gerðu Darks Souls og Demon Souls leikina. „Sem að segir þér eitt. Þetta verður erfitt, þetta verður mjög erfitt, þetta verður fallegt en erfitt.“

Svessi segir karakter-sköpunarkerfi leiksins vera hið fínasta, en það var tekið fyrir í öðru innslagi GameTíví. Hann segir heim Bloodborne gera gríðarstóran og stútfullan af myrkum ævintýrum.

Bardagakerfi leiksins fyrirgefur ekki mikið af mistökum og hefur það einkennt Souls leikina.

„Málið er að ef þú tapar þá deyrðu og þú tapar á því að deyja. Þetta er ekki svona, búmm, ég er mættur aftur og plús það þá eru loading tímarnir í þessu viðbjóður. Þannig að það fer mjög í taugarnar á þér að deyja.“

Svessi segir að það vegna þess hve leikurinn og bardagar séu erfiðir fylgi því mun betri tilfinning að sigra.

„Þegar þér tekst það þá færðu svo mikið til baka. Þetta er svo miklu meira heldur en að hakka sig í gegnum hitt og þetta heldur ertu að fá svo mikið til baka.“


Tengdar fréttir

Martröðin í Yarnham

Leikurinn Bloodborne manar spilara til þess að fara geyst áfram en refsar grimmilega fyrir öll mistök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×