Leikjavísir

GameTíví heimsækir íslenska leikjaframleiðandann Lumenox

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir Óli og Sverrir úr GameTíví kíktu nýverið til íslenska leikjafyrirtækisins Lumenox. Þar ræddu þeir við Jóhann, einn af hönnuðum partíleiksins YamaYama. Þeir bræður spiluðu leikinn við Jóhann og ræddu við hann um leikinn og fleira.

Fjórir geta spilað YamaYama og keppt þar í skemmtilegum og óhefðbundnum smáleikjum.

Strákarnir fara yfir nokkra af leikjunum sem er í boði en við spyrjum ekki að leikslokum. Til að sjá hver ber sigur úr býtum er hægt að horfa á innslag GameTíví hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×