Leikjavísir

GameTíví dómur: Star Wars Battlefront

Samúel Karl Ólason skrifar

Óli og Sverrir í GameTíví tóku leikinn Star Wars Battlefront til skoðunar. Um er að ræða fjölspilunarleik sem gefur forskot á Star Wars æðið sem líklega mun hefjast í næsta mánuði. Óli sem hefur spilað leikinn undanfarna daga fer yfir hvernig leikurinn virkar í nýjasta innslagi þeirra bræðra og segir til um hvað honum finnst.

Óli segir grafík leiksins vera með því besta sem hann hafi séð í skotleik. „Þetta er bara eitthvað fáránlegt, í alvörunni,“ eins og hann orðar það. Star Wars Battlefront er framleiddur af sömu aðilum og gera Battlefield leikina og ber hann þess merki.

Innslagið má sjá hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×