Leikjavísir

GameTíví Awakens - Stikla

Samúel Karl Ólason skrifar
Sverrir og Óli.
Sverrir og Óli.
Þeir Ólafur Þór Jóelsson og Sverrir Bergman úr GameTíví mæta aftur á Vísi í mars með nóg af nýju efni úr tölvuleikjaheiminum. Í tilefni þess gerðu strákarnir trailer sem byggir að miklu leyti á Star Wars: The Force Awakens.

Áherslur GameTíví verða beina útsendingar á Twitch, leikjadómar, að spila nýjustu leikina og prófa alls konar græjur.

GameTíví er einnig mætt á Snapchat þar sem nörd vikunnar verður valinn í hverri viku. Sá mun svo stjórna snappinu í viku og setja alla inn í sinn tölvuleikjaheim. Hvað hann sé að spila, á hvaða tölvur og margt fleira.

Trailerinn The GTV Awakens má sjá hér að neðan og er Óli í hlutverki Rey og Sverrir er í hlutverki Luke Skywalker.


Tengdar fréttir

Jólagjafahandbók GameTíví

GameTívídrengirnir Ólafur Þór Jóelsson og Sverrir Bergmann, fara yfir hvaða leiki þeir vildu helst sjá í jólapökkunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×