Leikjavísir

GameTíví: Topplisti yfir Halloween leiki

Samúel Karl Ólason skrifar
Ólafur Þór Jóelsson, eða Óli úr GameTíví, fer yfir bestu hrekkjavökuleikina í nýjasta innslagi GameTíví. Þar er af nógu að taka en leikjaframleiðendur hafa lengi lagt það í vana sinn að reyna af og til að bregða spilurum.

Einn af leikjunum sem Óli nefnir eru leikurinn Until Dawn. Hann segir það mjög skemmtilegt að hægt sé að tengja PlayStation myndavélina við leikinn sem tekur upp þegar spilurum bregður.

„Trúið mér, það gerist margoft. Ég á til af mér mjög neyðarlegar upptökur,“ segir Óli.

Fleiri leikir eru til dæmis Last of Us og Resident Evil 4. Óli fer yfir listann í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×