Leikjavísir

GameTíví: Reyndu á sellurnar í Witness

Samúel Karl Ólason skrifar
Sverrir Bergmann og Ólafur Þór Jóelsson.
Sverrir Bergmann og Ólafur Þór Jóelsson.
Þeir GameTívíbræður Óli og Sverrir kíkja á þrautaleikinn The Witness. Óli hefur spilað leikinn áður en segist varla vera nægilega gáfaður til að geta það. Því hafi hann fengið gáfaðasta, og jafnframt eina, vin sinn hann Sverrir Bergmann til þess að reyna við leikinn.

Óli segir þetta góðan leik fyrir þá sem vilja slaka á. Hann sé kjörinn fyrir Sverri sem hafi eitt ævinni í að telja kindur.

Innslag þeirra félaga má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×