Leikjavísir

GameTíví: Búinn að grafa sig niðri í kjallara

Samúel Karl Ólason skrifar
„Fallegur, flottur, flókinn. En á sama tíma einfaldur.“ Þannig lýsir Óli í GameTíví herkænskuleiknum Xcom 2. Óli hefur gjörsamlega fallið fyrir leiknum. Hann keypti sér nýja tölvu til að spila hann og hefur grafið sig niður í kjallara þar sem hann getur spilað í friði með Quark grímuna sína.

Sverrir finnur Óla í kjallaranum og spyr hann út í leikinn. Óli segist vera „alveg hooked“ og virðist hann mjög hrifinn. Óli fer yfir dóm sinn í innslagi þeirra GameTívíbræðra hér að ofan.

Í lokin er þó kannski best að taka fram að Quark er ekki Klingon heldur Ferengi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×