Leikjavísir

GameTíví: „Ég var á ferfætlingi, ég var á Svarthöfða, mér finnst ég hafa lifað“

Samúel Karl Ólason skrifar
Luke, Sverrir, Anakin og Óli á góðri stund.
Luke, Sverrir, Anakin og Óli á góðri stund.
GameTíví bræðurnir Óli og Svessi spiluðu Star Wars Battlefront betuna, sem verður opnuð á morgun. Fyrsta borðið sem Óli spilaði er frá plánetunni Sullust, sem byggð er á Íslandi.

„Bláa lónið er þarna, hraunið. Þér mun líða eins og þú sért í Drangey,“ segir Óli. Báðir eru þeir sammála um að leikurinn líti stórkostlega út.

Óli sagði frá því að hann hefði komist í nánd við Svarthöfða sjálfan áður en upptakan hófst. „Þegar ég var að spila stóra bardagann, lenti ég í því að mæta Svarthöfða og ég, í alvöru, nánast skeit á mig. Veistu hvað hann er ógnandi.“

Það vildi þó svo skemmtilega til að Óli fékk að prófa að spila sem Svarhöfði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×