Bíó og sjónvarp

Game of Thrones: Framleiðendurnir biðjast afsökunar

Samúel Karl Ólason skrifar
David Benioff og DB Weiss.
David Benioff og DB Weiss. Vísir/Getty
Enn og aftur.

Ef þú, lesandi kær, ert ekki búinn að horfa á síðasta þátt af Game of Thrones, sem sýndur var á sunnudaginn og mánudaginn, máttu ekki lesa lengra. NEI!




Þeir sem þegar eru búnir að horfa mega fletta neðar.

Framleiðendur Game of Thrones, DB Weiss og David Benioff, báðust í gær afsökunar á dauða Hodor í síðasta þætti. Þeir voru ekki að biðjast beint afsökunar á því að Hodor hefði dáið, þó það hafi verið mjög sorglegt. Þeir hafa drepið mjög marga karaktera í gegnum tíðina.

Þess í stað báðust þeir afsökunar á því gríni sem er nánast öruggt að fólk á eftir að finna fyrir í framhaldi af dauðanum.

Það er að fólk á eftir að fara að heyra „Hodor“ mjög oft, þegar einhver er að biðja um að hurð verði haldið opinni. Ef til vill verður þetta vandamál meira áberandi meðal enskumælandi þjóða, en það er alls ekki ólíklegt að þetta eigi eftir að stinga upp kollinum hér á landi og víðar.

Þeir félagar báðust afsökunar í þættinum hjá Jimmy Kimmel, þar sem sýnt var fram á hve óþolandi þetta grín á eftir að verða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×