Lífið

Game of Thrones: Bak við tjöld bardaga bastarðanna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Jon Snow í þrengingum.
Jon Snow í þrengingum. Mynd/HBO
 

Byrjum á því að vara við Höskuldum.
Hér að neðan verður farið yfir atriði úr síðasta þætti Game of Thrones.

Þeir sem vilja ekki vita meira ættu að hætta hér. Annars kemur Höskuldur og segir þér hvað gerist!

Herir Jon Snow og Ramsay Bolton öttu loks kappi í síðasta þætti Game of Thrones og þvílíkur bardagi sem það var.

Seinni helmingur þáttarins, sem er sá næstsíðasti í sjöttu seríu þáttanna, snerist allur um bardagann þar sem Wildlings, Norðanmenn og ýmsir aðrir hömruðu á hverjum öðrum með sverðum, spjótum, örvum og handafli í bardaga sem varð æ hrottalegri eftir því sem á leið á þáttinn.

Líkin hrönnuðust upp og vonin var veik fyrir Jon Snow og félaga sína allt þar til að óvænt aðstoð barst eftir bardaga sem bandaríski vefmiðillinn Vox segir að sé „líklega stærsta og flóknasta bardagaatriði í sjónvarpssögunni.“

Alls þurfti að kalla til um 500 aukaleikara og 80 hesta til þess að vinna atriðið sem tók um 30 daga að klára.

„Hvað varðar stærð, fjölda aukaleikara, fjölda áhættuleikara og fjölda tökudaga er þetta það stærsta sem við höfum gert,“ sagði þáttastjórnandi Game of Thrones, David Benioff, í viðtali við Entertainment Weekly fyrr á árinu. „Okkur hefur alltaf langað til að sýna alvöru bardaga milli tveggja herja,“ sagði einn handritshöfunda í viðtali við sama blað.

Og þeim tókst það heldur betur. Bardaginn var stórbrotinn og náði að keyra það heim hversu örvæntingarfullur Jon Snow og liðsmenn hans voru orðnir gegn nánast óvinnandi vígi Ramsay Bolton í Winterfell.

Framleiðendur þáttanna hafa gefið út tíu mínútna langt myndband þar sem skyggnst er bak við tjöldin á gerð bardagans. Myndbandið er afar fróðlegt og þar er vel farið yfir hvernig í ósköpunum það var hægt að framkvæmda þetta risavaxna atriði á snurðulausan hátt.

Þar kemur fram einnig fram að Kit Harrington, sá sem leikur Jon Snow, var nærri troðinn undir 40 hesta hestastóð við gerð bardagans.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×