Leikjavísir

Gamalt fólk spilar GTA

Samúel Karl Ólason skrifar
Konan er miður sín yfir því að hafa slegið vegfarenda. Aðspurð af hverju hún hafi slegið hann segir hún: „Ég ætlaði að skjóta hann.“
Konan er miður sín yfir því að hafa slegið vegfarenda. Aðspurð af hverju hún hafi slegið hann segir hún: „Ég ætlaði að skjóta hann.“
Hvernig taka ömmur og afar því að spila Grand Theft Auto 5? Þessari spurningu er reynt að svara í myndbandi sem birt var á Youtube á dögunum. Þar má sjá nokkra einstaklinga spila leikinn af mikilli innlifun og virðast þau flest skemmta sér vel.

Myndbandið var birt á Youtuberásinni React.

Í lok myndbandsins fer fólkið yfir reynslu sína af GTA og flest eru þau ánægð með leikinn. Þó væru þau ekki til í að leyfa barnabörnum sínum að spila hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×