Fótbolti

Gamall Arsenal-maður með þrennu fyrir Þjóðverja | Úrslitin í undakeppni HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Serge Gnabry fagnar einu marka sinna í kvöld.
Serge Gnabry fagnar einu marka sinna í kvöld. Vísir/Getty
Tíu leikir fóru fram í undankeppni HM í kvöld og það er hægt að finna öll úrslit og markaskorara inn á Vísi.

Þjóðverjar tvöfölduðu markaskor sitt í undankeppninni með því að vinna 8-0 stórsigur á San Marinó. Þýska liðið er með 12 stig af 12 mögulegum og markatöluna 16-0 eftir fyrstu fjóra leikina.

Serge Gnabry, fyrrum leikmaður Arsenal, skoraði þrennu í leiknum og bakvörðurinn Jonas Hector var með tvö mörk. Minni spámenn fengu að njóta sín í leik sem allir vissu að Þjóðverjar voru að fara að vinna.

Serge Gnabry var á samningi hjá Arsenal frá 2012 til 2016 en enska félagið seldi hann til Werder Bremen í sumar. Gnabry hefur byrjað vel hjá Bremen og skoraði síðan þrennu í fyrsta landsleik sínum í kvöld.

Norður-Írar eru í öðru sæti riðilsins eftir 4-0 heimasigur á Aserbaídjsan en Aserbaídjsan hafði komið mörgum á óvart og náð í sjö stig í fyrstu þremur umferðunum. Stórsigur Norður-Íra kemur þeim upp fyrir Asera á markatölu.

Tékkar unnu síðan sinn fyrsta sigur þegar þeir unnu Norðmenn 2-1 á heimavelli. Tékkar komust í 2-0 en Norðmenn minnkuðu muninn undir lokin. Norðmenn hafa tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í riðliðlinum.

Christian Eriksen skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Dana á Kasakstan en Danir eru í þriðja sæti E-riðils. Pólverjar eru á toppnum með 10 stig en Robert Lewandowski innsiglaði 3-0 útisigur Pólverja á Rúmeníu með tveimur mörkum á síðustu sjö mínútunum.

Englendingar eru á toppi F-riðils eftir 3-0 sigur á Skotum á Wembley en Slóvenar eru tveimur stigum á eftir þökk sé 1-0 útisigri á Möltu. Slóvakar unnu 4-0 stórsigur á Litháen og er í þriðja sæti, fjórum stigum á eftir Englandi og tveimur stigum á eftir Slóveníu.



Úrslitin í leikjunum í kvöld í undankeppni HM 2018:

A-riðill

Frakkaland - Svíþjóð    2-1

0-1 Emil Forsberg (54.), 1-1 Paul Pogba (57.), 2-1 Dimitri Payet (65.)

C-riðill

San Marinó - Þýskaland    0-8

0-1 Sami Khedira (7.), 0-2 Serge Gnabry (9.), 0-3 Jonas Hector (32.), 0-4 Serge Gnabry (58.), 0-5 Jonas Hector (65.), 0-6 Serge Gnabry (76.), 0-7 Sjálfsmark (82.), 0-8 Kevin Volland (85.)

Norður-Írland - Aserbaídjsan    4-0

1-0 Kyle Lafferty (27.), 2-0 Gareth McAuley (40.), 3-0 Conor McLaughlin (66.), 4-0 Chris Brunt (83.)

Tékkland - Noregur    2-1

1-0 Michal Krmencík (11.), 2-0 Jaromír Zmrhal (47.), 2-1 Joshua King (87.)

E-riðill

Armenía - Svartfjallaland    3-2

0-1 Damir Kojasevic (36.), 0-2 Stevan Jovetic (38.), 1-2 Artak Grigoryan (50.), 2-2 Varazdat Haroyan (74.), 3-2 Gevorg Ghazaryan (90.+3).

Danmörk - Kasakstan    4-1

1-0 Andreas Cornelius (15.), 1-1 Gafurzhan Suyumbaev (17.), 2-1 Christian Eriksen (36.), 3-1 Peter Ankersen (78.), 4-1 Christian Eriksen (90.)

Rúmenía - Pólland    0-3

0-1 Kamil Grosicki (11.), 0-2 Robert Lewandowski (83.), 0-3 Robert Lewandowski (90.)

F-riðill

England - Skotland    3-0

1-0 Daniel Sturridge (24.), 2-0 Adam Lallana (50.), 3-0 Gary Cahill (61.)

Malta - Slóvenía    0-1

0-1 Benjamin Verbic (47.),

Slóvakía - Litháen    4-0

1-0 Adam Nemec (12.), 20 Juraj Kucka (15.), 3-0 Martin Skrtel (36.), 4-0 Marek Hamsík (86.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×