Glamour

Gallabuxur, blúnda, gimsteinar og loð -

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það eru ekki allir fyrir kjóla, og sumum líður einfaldlega bara best í gallabuxum. Ekki örvænta, því fallegir hælaskór og blúndusamfella setja punktinn yfir i-ið, og þú verður alveg jafn hátíðleg og allir hinir. Stelum stílnum frá blaðamanninum og fyrirsætunni Kristen Noel Crawley. 

Buxurnar eru gömlu góðu og klassísku Levi's 501, fást í Levi's búðinni.

Blúndusamfellan er til í Zöru.

Skórnir fást í Yeoman Boutique og eru frá íslenska skómerkinu KALDA. 






×