Lífið

Gagnvirkt ættartré: Hver er hvað í bresku konungs­fjöl­skyldunni?

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Gagnvirka útgáfu ættartrésins má finna neðar í fréttinni.
Gagnvirka útgáfu ættartrésins má finna neðar í fréttinni. vísir/graphic news
Hertoginn og hertogaynjan af Cambridge, Vilhjálmur og Katrín, eignuðust fyrir þremur dögum sitt annað barn. Stúlkan hefur hlotið nafnið Karlotta Elísabet Díana. Fyrir eiga hjónin soninn Georg Alexander Lúðvík.

Karlotta litla bætist nú í langa röð þeirra sem erft geta bresku krúnuna. Hún fer hins vegar fram fyrir talsvert marga sem voru í röðinni á undan henni. Nú er hún númer fjögur í röðinni á eftir bróður sínum, föður og afa en langamma hennar, Elísabet II, situr nú í hásætinu.



Til að skýra út hver er hver í konungsfjölskyldunni er búið að taka saman ættartré sem sýnir þá sem eru fremstir í röðinni.

Hægt er að smella á myndirnar af fólkinu til að fá nánari upplýsingar um uppruna og sögu þeirra.

Þess má síðan til gamans geta að meira og minna allt kóngafólk Evrópu er skilt innbyrðist. Haraldur V Noregskonungur er til að mynda í erfðaröð bresku krúnunnar en hann er nú númer 72 í röðinni. Amma hans, Maud, var eiginkona Hákons VII en faðir hennar var Játvarður VII Englandskonungur. Því gæti sú staða mögulega komið upp ef þeir 71 á undan Haraldi myndu farast að konungur Noregs og Bretlands yrðu einn og sami maðurinn.


Tengdar fréttir

Prinsessan fær nafnið Charlotte Elizabeth Diana

Ákveðið hefur verið að nefna dóttur Katrínar, hertogaynju af Cambridge, og Vilhjálms, Bretaprins, Charlotte Elizabeth Diana eða Karlotta Elísabet Díana en þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×