Lífið

Gagnrýnd fyrir óvenjulegar sjálfsmyndir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Finnski ljósmyndarinn iiu Susiraja hefur vakið gríðarlega athygli en verk hennar eru ekki allra.

Hún býr til skemmtilegar og fyndnar sjálfsmyndir þar sem hún gerir eitthvað óvenjulegt - til dæmis setur hún kústskaft undir brjóst sín eða bein á milli munns og nefs.

Í samtali við Ignant segir hún að hún hafi fengið tölvupóst frá óþekktum sendanda eitt sinn sem sagði að hún ætti að fá sér alvöru vinnu. En iiu finnst gagnrýni eitt af því besta við starf sitt og lætur hana ekki á sig fá.

„Ég mynda mig því það er það viðfangsefni sem ég þekki best. Ég bý til hluti úr mér og einkalífi mínu,“ segir hún en nokkrar myndir eftir hana má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×