Lífið

Gáfu vinnu til styrktar krabbameinsveikum

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Júlía Skarphéðinsdóttir matreiðslumaður ber fram rétti í hátíðarkvöldverðinum.
Júlía Skarphéðinsdóttir matreiðslumaður ber fram rétti í hátíðarkvöldverðinum. Vísir/Kristinn Frímann Jakobsson
Klúbbur matreiðslumeistara á Norðurlandi hélt hátíðarkvöldverð á Hótel KEA fyrir skemmstu en tilgangur kvöldverðarins var að safna peningum fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar. Allir sem að viðburðinum komu gáfu vinnu sína, hvort sem það voru kokkar, þjónar eða skemmtikraftar. Lögðu fjölmargir birgjar til hráefni og léði Hótel KEA afnot af sal og eldhúsi.

Júlía Skarphéðinsdóttir, formaður Klúbbs matreiðslumanna á Norðurlandi, segir kvöldið hafa heppnast einstaklega vel. „Það var alveg ótrúlegt hvað var auðvelt að safna fólki til að taka þátt og hvað allir voru tilbúnir til að gefa vinnu sína,“ segir Júlía en þetta er þriðja árið sem þau safna fyrir Krabbameinsfélagið á Akureyri. Söfnunin hefur aldrei verið jafn viðamikil.

Hugmyndin að henni kviknaði fyrir fjórum árum þegar félagið var stofnað. „Við heyrðum útundan okkur að félagið væri sjálfstætt starfandi og það sat eitthvað svo í okkur þannig að við völdum þau,“ segir Júlía. Í ár mættu um hundrað manns og segir hún þau ætla að gera enn betur að ári. „Þetta gekk svo vel. Að sjá metnaðinn í öllum sem að þessu komu og finna andann í salnum, þar sem allir vissu hvað þeir voru að styrkja, var ómetanlegt,“ segir hún, en mikið af fyrirtækjum í bænum buðu starfsfólki eða viðskiptavinum sínum að borða og styrktu þannig málefnið.

Fjöldi gesta mættu í kvöldverðinnVísir/Kristinn Frímann Jakobsson
Get ekki þakkað þeim nóg

Þorbjörg Ingvadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Akureyrar, var að vonum ánægð og segist ekki geta þakkað þeim nógu oft fyrir stuðninginn. „Þetta er algjörlega ómetanlegt, ég veit ekki hvernig ég get þakkað fyrir þetta. Þetta skiptir okkur öllu máli. Þessi frábæri hópur hefur gert þetta af svo mikilli einlægni og ósérhlífni og það er svo mikilvægt fyrir okkur að finna þennan stuðning,“ segir Þorbjörg.

Vegna söfnunarinnar gat Krabbameinsfélagið hækkað styrki úr 50 prósentum í 75 prósent vegna dvalar sjúklinga í íbúðum fyrir sunnan. „Það er dýrt að greinast með þennan sjúkdóm og hvað þá að þurfa að fara í annan landshluta í jafnvel tíu vikur í meðferð er kostnaðarsamt. Þetta skiptir öllu fyrir okkur í því að létta undir með fólki,“ segir Þorbjörg. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×