Innlent

Gáfu Landspítalanum tæki fyrir 2,5 milljónir

Jóhann Óli eiðsson skrifar
Á 12E er tekið var á móti gjöfunum.
Á 12E er tekið var á móti gjöfunum.
Lionsklúbburinn Njörður hefur fært legudeild hjarta- og lungnaskurðdeildar 12E á Landspítala Hringbraut að gjöf rafmagns brjóstholsdren, blóðþrýstingsmæli á hjólum og þvagblöðruómtæki. Verðmæti tækjanna er 2,5 milljónir króna.

Á deildinni  liggja sjúklingar eftir hjarta- og brjóstholsskurðaðgerðir og/eða brjóstholsáverka. Öll þau tæki sem gefin voru eru í daglegri notkun og gera starfsfólki kleift að bæta þjónustu við sjúklinga. Stór hluti sjúklinga sem liggur á deildinni fær brjóstholsdren og er tækið sem nú var gefið með hleðslurafhlöðu sem gerir sjúklingum kleift að komast fyrr á fætur en ella og flýtir þannig fyrir bata. Blöðruómtækið og blóðþrýstingsmælirinn auðveldar eftirlit með sjúklingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×