Körfubolti

Gafst upp og tók allt byrjunarlið Knicks af velli í einu | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Derek Fisher gafst upp á byrjunarliðinu í nótt.
Derek Fisher gafst upp á byrjunarliðinu í nótt. vísir/getty
New York Knicks tapaði enn einum leiknum í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, en að þessu sinni steinlá liðið heima gegn Dallas Mavericks, 107-87.

Forsetatíð Phil Jacksons byrjar skelfilega, en Derek Fisher, þjálfari liðsins, hefur litlu náð út úr sínum mönnum sem eru í næst neðsta sæti austurdeildarinnar með aðeins fimm sigra og 22 töp.

Knicks var snemma komið í eltingarleik við Dallas í nótt, en liðið var 15 stigum undir þegar fimm mínútur og 20 sekúndur voru eftir af fyrsta leikhluta.

Þegar Dirk Nowitzki skoraði úr vítaskoti og breytti stöðunni í 26-11 var Fisher nóg boðið og skipti öllu byrjunarliðinu út af í einu.

Eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan var Carmelo Anthony ekkert skemmt við þessa ákvörðun þjálfarans, en Dirk Nowitzki glottir þegar hann sér í hvað stefnir.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×