Viðskipti innlent

Gafflar Lauf Forks í verslanir í Ameríku

Haraldur Guðmundsson skrifar
Bergur Benediktsson, Guðberg Björnsson, Rúnar Ómarsson og Benedikt Skúlason starfa hjá Lauf Forks.
Bergur Benediktsson, Guðberg Björnsson, Rúnar Ómarsson og Benedikt Skúlason starfa hjá Lauf Forks. Vísir/Ernir
Lauf Forks hefur samið við bandaríska fyrirtækið QBP um dreifingu á hjólagöfflum nýsköpunarfyrirtækisins í Bandaríkjunum, Kanada, Mexíkó og Mið-Ameríku. QBP selur hjólreiðavörur til yfir fimm þúsund verslana.

„Fyrirtækið er stærsti dreifingaraðili hjólavarnings í heiminum og nú geta verslanir á lykilmarkaðssvæðum tekið gafflana okkar til sölu á einfaldan hátt. Þetta er því stórt skref fyrir okkur og mikill gæðastimpill,“ segir Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri og einn af eigendum Lauf Forks.

Nýsköpunarfyrirtækið hefur þróað nýja gerð af göfflum fyrir reiðhjól. Þeir eru smíðaðir úr koltrefjum, eru innan við kíló að þyngd og því talsvert léttari en hefðbundnir demparagafflar.

„Við höfðum áður gert dreifingarsamninga á ýmsum markaðssvæðum en höfum nú við hakað við stærsta boxið eða Norður-Ameríku,“ segir Benedikt um samninginn við QBP (Quality Bicycle Products).

Samningurinn var að sögn Benedikts undirritaður í kjölfar þátttöku Lauf í vörusýningunum Eurobike í Þýskalandi og Interbike í Bandaríkjunum.

„Við erum að bjóða upp á ansi framandi hjólagaffla sem menn eiga við fyrstu sýn erfitt með að ímynda sér að virki almennilega. Það kemur ekkert í staðinn fyrir það að menn prófi gafflana og þarna fengu starfsmenn QBP tækifæri til þess.“

Gafflarnir hafa verið í þróun í tæp fjögur ár. Lauf samdi á síðasta ári við fyrirtæki sem framleiðir hjól og hjólaíhluti úr koltrefjum og fær nú um tvö hundruð gaffla á mánuði frá Kína.

„Okkar næstu skref verða fólgin í að byggja á þessum samningi og vonandi auka framleiðsluna. Við munum einnig nýta okkur sölunet QBP til að þróa nýjar en keimlíkar vörur. Það stendur okkur einna helst fyrir þrifum í augnablikinu að það hafa ekki nægjanlega margir fengið að prófa gafflana okkar. Nú ætti það að breytast.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×