Fótbolti

Gaf flugmanninum tóma vatnsflösku

Asprilla frekar stressaður fyrir flugið.
Asprilla frekar stressaður fyrir flugið. mynd/instagram
Margir flugfarþegar eru ekki í rónni þessa dagana eftir harmleikinn sem varð í flugi Germanwings á dögunum.

Fyrrum fótboltastjarnan frá Kólumbíu, Faustino Asprilla, er þeirra á meðal og hann tók málin í sínar hendur.

Hann birti mynd af sér á Instagram fyrir flugið frá Moskvu þar sem hann virkar skíthræddur. Þegar hann kom um borð gaf hann sig á tal við starfsfólk vélarinnar.

Hann kom meðal annars tómri vatnsflösku á flugstjórann svo hann myndi ekki fara á salernið og skilja aðstoðarflugstjórann einan eftir.

„Ég bannaði flugmanninum að fara á klósettið og gaf honum flösku til að pissa í. Ef hann fer á salernið þá mun geðsjúklingurinn sem er með honum í klefanum hrapa vélinni. Það vita allir," sagði Asprilla á Instagram-síðu sinni.

Vélin lenti heilu og höldnu en ekki er vitað hvort flugmaðurinn hafi notað flöskuna sem hann fékk frá Asprilla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×