Gætum að hagsmunum Íslands Haukur Þór Hauksson skrifar 22. desember 2015 07:00 Nú liggur fyrir að Evrópusambandið mun framlengja viðskiptaþvinganir sínar gegn Rússlandi í 6 mánuði en viðskiptaþvinganirnar hefðu ella fallið niður í lok janúar 2016. Ísland er ekki bundið af ákvörðun ESB. Engar skuldbindingar knýja Ísland til að vera þátttakandi í viðskiptaþvingununum heldur tökum við sjálfstæða ákvörðun í málinu. Til upprifjunar þá fela viðskiptaþvinganir „bandalagsþjóða“ (ESB, USA, Kanada auk nokkurra annarra þjóða) gagnvart Rússlandi í grunninn í sér eftirfarandi: Fyrirtæki mega ekki eiga í vopnaviðskiptum við Rússa. Fyrirtæki mega ekki selja tæknivörur til hernaðarnotkunar í Rússlandi. Fjármálastofnanir mega ekki fjármagna tiltekna rússneska banka til lengri tíma en 30 daga í senn. Ekki er heimilt að fjármagna tiltekin orkufyrirtæki í Rússlandi. Ferðabann gildir fyrir tiltekna rússneska og úkraínska einstaklinga til bandalagsþjóða. Frysting eigna gildir gagnvart tilteknum rússneskum og úkraínskum einstaklingum hjá bandalagsþjóðum. Fyrirtæki mega ekki veita ferðamannaþjónustu á Krímskaga. Ef einhver hélt að viðskiptaþvinganir bandalagsþjóða væru eitthvað í ætt við viðskiptabann Bandaríkjanna á Kúbu og Íran þá er sá hinn sami að misskilja málið í grundvallaratriðum. Áðurnefnd atriði breyta engu um að hefðbundin viðskipti fara enn fram á degi hverjum í miklum mæli á milli Rússa og hinna svokölluðu bandalagsþjóða. Til að mynda selja Þjóðverjar iðnaðarframleiðslu sína til Rússlands á sama tíma og þeir eru stórkaupendur að olíu og gasi frá Rússlandi. Stórmarkaðir í Rússlandi eru fullir af vörum bandalagsþjóða, hvort sem um er að ræða fatnað, vín, leikföng eða sælgæti. Götur Moskvu iða af nýjum þýskum, bandarískum og frönskum bifreiðum og enn eru gerðir risasamningar á milli fyrirtækja bandalagsþjóða og rússneskra fyrirtækja og stofnana. Rússar svöruðu fyrrgreindum viðskiptaþvingunum gegn sér með banni á innflutningi matvæla sem fól í sér að nær allur innflutningur á fiski og algengum tegundum kjöts frá bandalagsþjóðum er bannaður til Rússlands. Samfara mjög aukinni matvælaframleiðslu í Rússlandi í kjölfar viðskiptaþvingana eykst eftirspurn mjög ört eftir framleiðslutækjum og öðrum iðnaðarvörum til landbúnaðarframleiðslu í Rússlandi. Hvaðan skyldu Rússar kaupa þær iðnaðarvörur? Það stendur ekki á stóru bandalagsþjóðunum að svara þeirri eftirspurn. Svona getur heimurinn verið skrýtinn!Grunnt á samstöðunni Þátttaka Íslands í viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi er í reynd einungis táknræn. Hún hefur enga raunverulega þýðingu eða afleiðingar fyrir Rússa. Íslendingar eiga ekki í vopnaviðskiptum, rússnesk stórfyrirtæki fjármagna sig ekki á Íslandi og tilteknir rússneskir einstaklingar geta lifað ágætu lífi án þess að fara gullna hringinn á Íslandi. Þegar íslensk stjórnvöld leituðu eftir niðurfellingu eða lækkun tolla (20%) á frystum makríl til ríkja ESB á grundvelli þess að stuðningurinn (táknræni) í „Rússamálinu“ þýddi lokun stærsta markaðar uppsjávartegunda Íslendinga var svar Evrópusambandsins einfalt. Ísland fengi enga lækkun á tollum inn á svæði ESB. Færeyingar taka ekki þátt í viðskiptaþvingunum gegn Rússum og selja þangað uppsjávartegundir sínar á góðu verði sem aldrei fyrr. Þeir átta sig á þeirri staðreynd að þátttaka þeirra væri einungis táknræn á sama tíma og hún myndi kosta þá mikið. Stuðningsleysi Færeyinga í Rússamálinu virðist ekki trufla samskipti ESB og Færeyja á fundum strandríkja í Norður-Atlantshafi þegar kemur að því að mynda teymi gegn Íslendingum um veiðiheimildir í kolmunna og makríl.Afleiðingarnar fyrir Ísland Afleiðingar þess fyrir Ísland að vera táknrænn þátttakandi í viðskiptaþvingunum gegn Rússum eru þær að stærsti markaður uppsjávarafurða Íslendinga er lokaður. Hér er um að ræða markað sem hefur vaxið ört undanfarin ár og nemur um 30 milljörðum króna á ársgrundvelli. Lokun Rússlandsmarkaðar gerir það að verkum að íslenskar uppsjávarafurðir eru seldar á lægri verði en ella, mun meira magn fer í bræðslu í stað manneldis, gjaldeyristekjur dragast saman, atvinna dregst saman, laun lækka og útsvar til sveitarfélaga lækkar. Því lengur sem bannið gildir því meiri hætta er á að viðskiptasambönd sem tekið hefur áratugi að rækta, í gegnum súrt og sætt, tapist til lengri tíma. Lengi getur vont versnað. Styðji Íslendingar framlengingu viðskiptaþvingana þá aukast líkurnar verulega á því að lokað verði inn á markaði tollabandalags Rússlands, Hvíta-Rússlands, Kasakstans, Armeníu og Kirgistan (e. Eurasian Customs Union). Gerist það lokast mikilvægur loðnumarkaður Íslendinga í Hvíta-Rússlandi. Þá gáfu Rússar það í skyn fyrr í þessum mánuði að svokallaður Smugusamningur færi í uppnám vegna málsins en Íslendingar hafa veitt um 8.000 tonn af þorski í Barentshafi á grundvelli umrædds samnings og losa tekjur af þeim veiðum 2 milljarða króna á ári. Ísland er fiskveiðiþjóð. Af þeim sökum vega gagnaðgerðir Rússa miklu þyngra í efnahag Íslands en nær allra annarra bandalagsþjóða. Það væri áhugavert að vita hver viðbrögð Þjóðverja yrðu ef innflutningur þýskra bifreiða og álíka iðnaðarvara yrði bannaður til Rússlands. Ísland getur komið skoðun sinni á deilunni á Krímskaga á framfæri með öðrum hætti en að taka gagnrýnislaust þátt í viðskiptaþvingunum sem leiddar eru af Bandaríkjunum. Þvinganirnar hafa einungis táknrænt gildi en mikinn skaða fyrir íslenskan efnahag. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Laskað stýri, léleg vél og lekur bátur Sigurður Páll Jónsson Skoðun #Katrín er minn forseti Elín Hirst Skoðun Gætum jafnræðis og látum ÖLL börn njóta gjaldfrjálsrar grunnmenntunar Erna Reynisdótir Skoðun Kjósum Helgu Þórisdóttur Ragnheiður Stefánsdóttir Skoðun Áttu efnaða foreldra eða ekki? Thelma Lind Jóhannsdóttir Skoðun Að skilja íslenskt félagslegt viðmið Valerio Gargiulo Skoðun Framtíð Dalanna heillar Garðar Freyr Vilhjálmsson Skoðun Má brjóta lög? Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans? Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Um sjálfstæði þjóðar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Laskað stýri, léleg vél og lekur bátur Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun #Katrín er minn forseti Elín Hirst skrifar Skoðun Svart er það og yfirgangur mikill Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Um sjálfstæði þjóðar Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Skapandi ónákvæmni tveggja hagfræðinga Sirrý Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Helgu Þórisdóttur? Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Kjósum Helgu Þórisdóttur Ragnheiður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Má brjóta lög? Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að skilja íslenskt félagslegt viðmið Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Traust og gagnsæi Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Framtíð Dalanna heillar Garðar Freyr Vilhjálmsson skrifar Skoðun Grunnskóli á krossgötum Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir skrifar Skoðun Öryggisógnir í breyttum heimi Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Höfnum óeðlilegri hagnýtingu sjálfboðaliða Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að skilja faglega Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Læknafélag Íslands skilar ekki auðu Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Áttu efnaða foreldra eða ekki? Thelma Lind Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Farsæl hagræðing í kjötiðnaði innan ramma samkeppnislaga Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Kennarar – á hraðbraut í kulnun Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi Íslands – horfum til framtíðar Egill Steinar Ágústsson skrifar Skoðun Er of mikill hiti í hleðslunni hjá þér? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Hvað felst í frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum? Hildur Ýr Viðarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Skortur á möguleikanum á dánaraðstoð leiðir til þess að fólk tekur eigið líf Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Varnargarðar utan um fólkið í Grindavík Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Meiri pening, takk Gunnar Úlfarsson skrifar Skoðun Gervigreind og máttur tungumálsins Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sameinum 2. og 3. deild karla í knattspyrnu Bergvin Oddsson skrifar Skoðun Skynsamlegt að selja Íslandsbanka Teitur Björn Einarsson skrifar Skoðun Gleymdu börnin Kolbrún Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Grunnskóli á krossgötum Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Árnadóttir,Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: Læknafélag Íslands skilar ekki auðu Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað felst í frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum? Hildur Ýr Viðarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans? Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar
Skoðun Skortur á möguleikanum á dánaraðstoð leiðir til þess að fólk tekur eigið líf Ingrid Kuhlman skrifar