Tónlist

Gæti spilað á Grammy-hátíð

Rihanna sendi nýlega frá sér lagið Four Five Seconds.
Rihanna sendi nýlega frá sér lagið Four Five Seconds.
Orðrómur er uppi um að Rihanna, Kanye West og Paul McCartney ætli að koma fram á Grammy-verðlaunahátíðinni í næsta mánuði.

Stutt er síðan hin 26 ára Rihanna sendi frá sér nýtt lag, Four Five Seconds, þar sem Kanye og McCartney voru henni til halds og trausts.

Ef þau spila á Grammy-hátíðinni munu þau bætast í hóp með Madonnu, AC/DC, Pharrell, Ed Sheeran, Lady Gaga, Sam Smith og fleiri listamönnum sem stíga á svið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×