Gæti skapað sátt um hvað það kostar að lifa Haraldur Guðmundsson skrifar 20. október 2014 07:00 Mikil umræða hefur verið um útreikninga á útgjöldum heimila til matarkaupa sem finna má í frumvarpi fjármálaráðherra um breytingar á virðisaukaskatti. Vísir/GVA „
Umræðan síðustu daga sýnir hversu mikilvægt það er að ný neysluviðmið verði reiknuð út því það myndi tryggja að við værum öll að miða við sömu tölurnar og kæmi í veg fyrir eitthvað misræmi í kerfinu,“ segir Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður og fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um að ráðist verði í endurskoðun á útreikningi neysluviðmiða fyrir íslensk heimili.Elsa Lára ArnardóttirÍ tillögunni er Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, falið að hefja vinnu við útreikning nýrra neysluviðmiða. Þau eigi að innihalda þá þætti sem núverandi viðmið byggjast á en einnig húsnæðiskostnað heimila. Elsa segir umræðuna í fjölmiðlum síðustu daga, um útgjöld heimila til matarkaupa, sýna hversu mikilvægt það sé að ráðist verði í könnun á raunframfærslukostnaði einstaklinga og fjölskyldna í landinu. „Ég tel mjög brýnt að það myndist sátt um það hvað við þurfum virkilega að eiga til að geta lifað á Íslandi í dag. Sem dæmi hefur komið fram í fjölmiðlum að talsverður munur er á milli útreikninga á matarkostnaði. Það væri til bóta ef við gætum leitað í tölu sem væri sú rétta um þennan kostnaðarlið sem öll heimili þurfa að bera.“ Hugmyndin að tillögunni kom að sögn Elsu til vegna athugasemda forystumanna verkalýðshreyfingarinnar og Hagsmunasamtaka heimilanna. „Þeim þótti mikilvægt að gerðar yrðu breytingar á útreikningum neysluviðmiðanna, og að húsnæðiskostnaðurinn færi inn í þær tölur, því við þurfum jú öll að eiga þak yfir höfuðið,“ segir Elsa og tekur fram að tillagan miði við allan kostnað sem fellur til vegna eigin húsnæðis- eða leiguhúsnæðis. Elsa og fimm aðrir þingmenn Framsóknarflokksins lögðu tillöguna fram á þingi í síðasta mánuði. Hún er nú í umsagnarferli í velferðarnefnd Alþingis. „Ég er vongóð um að málið nái í gegn á þingi. Ég sit ekki í nefndinni en veit að það eru einhverjir aðilar búnir að skila inn umsögnum þar sem tekið er undir orð mín, og annarra Framsóknarmanna sem að þessu koma, um að þetta sé mjög brýnt. Því fleiri jákvæðar umsagnir því líklegra er að tillagan komist í gegn,“ segir Elsa.
Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira