Bíó og sjónvarp

Gæti leikið í Ghostbusters 3

Rebel Wilson er nálægt því að tryggja sér hlutverk í gamanmyndinni Ghostbusters 3.
Rebel Wilson er nálægt því að tryggja sér hlutverk í gamanmyndinni Ghostbusters 3. Vísir/Getty
Rebel Wilson er nálægt því að tryggja sér hlutverk í gamanmyndinni Ghostbusters 3. Ástralska leikkonan varð heimsfræg fyrir hlutverk sín í Bridesmaids og Pitch Perfect.

Leikstjóri Bridesmaids, Paul Feig, mun einnig leikstýra Ghostbusters 3 þar sem konur verða í aðalhlutverkunum. „Við höfum hist en hver veit?“ sagði Wilson um fund sinn með Feig í viðtali við Matt Lauer. „Ég myndi leika í Ghostbusters ókeypis. Ég ætti kannski ekki að segja þetta í beinni útsendingu í sjónvarpi.“

Talið er að Sandra Bullock og Melissa McCarthy, sem léku saman í The Heat, fari með hlutverk í Ghostbusters 3.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×