Innlent

Gæslan kvaddi goðsögn í lifanda lífi

Una Sighvatsdóttir skrifar

Landhelgisgæslan var með mikinn viðbúnað í dag þegar Benóný Ásgrímssyni var komið á óvart við lendingu eftir hans síðasta þyrluflug. Benóný er 65 ára í dag og á að baki um 35 þúsund flugferðir á farsælum ferli, en tilviljun réði því að hann hóf fyrst störf hjá gæslunni.

„Það var fyrir 50 árum síðan, þegar ég var sendisveinn hjá Ellingsen og þá hitti ég einn yfirmann á varðskipi og hann spurði mig hvort ég gæti komið út á sjó eftir 3 klukkutíma. Eftir það var framtíðin ráðin hjá mér," segir Benóný.

Hefur bjargað fjölda mannslífa

Þessi örlagadagur fyrir 50 árum reyndist líka gæfuspor fyrir íslensku þjóðina því Benóný er reynslumesti flugstjóri landsins, og þótt víðar væri leitað, í leitar- og björgunarflugi. Hann segist oft hafa verið hræddur en, hann notið starfsins alla tíð.

„Sérstaklega held ég að það sé þakklætið og hvatningin við þakklætið sem verður ef manni tekst að hjálpa einhverjum, ég tala nú ekki  um ef manni tekst að bjarga mannslífi. Þá er það svo mikið gefandi að það er alveg drifkrafturinn fyrir mann, þótt það hlaðist upp bólstraský annað slagið hjá manni."

Kyssti björgunarþyrluna í kveðjuskyni

Hann hefur þó enga tölu á því hversu mörgum mannslífum hann hefur bjargað gegnum tíðina og segir það ekki skipta neinu máli. „Enda lít ég á þetta bara sem vinnuna mína. Ég hef aldrei þurft að hafa neina tölu sérstaklega á því."

Benóný skilur sáttur við en hann leyfði sér smá tilfinningasemi þegar hann steig frá borði og smellti kossi á björgunarþyrluna sem hann segir hafa reynst sér vel.

Stýrimaður í tveimur þorskastríðum

Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir það ekki orðum aukið að segja Benóný hetju og goðsögn í lifanda lífi.

„Hann hefur komið við í öllum deildum landhelgisgæslunnar til sjós og lands, verið stýrimaður í tveimur þorskastríðum, verið flugstjóri á þyrlum og flugvél hér heima og víða um heim, þannig að það er full ástæða til að kveðja svona sómamenn með bravúr."

Stjúpdóttirin aðstoðarflugmaður í síðustu ferðinni

Og næsta kynslóð er þegar tekin við því stjúpdóttir Benónýs, Brynhildur Ásta Bjartmarz, er einnig þyrluflugmaður. Hún er búsett í Bandaríkjunum en kom stjúpföður sínum á óvart í dag og flaug með honum síðasta flugið. Brynhildur segir forréttindi að hafa fengið að fljúga með honum og læra af honum, en segist þó ekki ætla að reyna að feta í hans fótspor.

„Það sem maður getur gert er að hafa hann sem fyrirmynd og gera sitt besta. Það fer enginn í hans fótspor held ég."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×