Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kosið í stjórn Íslenska viðskiptaráðsins í Japan Fundurinn fór fram í sendiráði Íslands í Tókýó, en sendiráðið hefur umsjón með starfi ráðsins. Heiðursformaður ráðsins er Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Japan. 21.12.2017 10:09
Íslenska viðskiptaárið 2017: Costco, H&M, daður í háloftunum, aspartamdrykkir og „Bara I'm sorry“ Íslenskt viðskiptalíf ársins 2017 einkenndist einkum af komu Costco og H&M á markað. Flugfélögin, gosdrykkir og gleyminn fjárfestir voru í brennidepli en einnig sögðum við skilið við margar verslanir, veitinga- og skemmtistaði eftir erfiðan rekstur. 20.12.2017 20:30
Breyttu húsnæði Krossins í 102 herbergja hótel First Hotels er skandinavísk hótelkeðja sem rekur alls 90 hótel víða um heim. Hótelið í gamla Krossinum er það fyrsta sem keðjan opnar hér á landi. 20.12.2017 14:09
Eyjólfur Magnús nýr forstjóri Advania Data Centers Hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra rekstrarlausnasviðs Advania frá árinu 2010 og samhliða því leitt starfsemi gagnaveranna frá 2011. 20.12.2017 12:27
Vilja móta heimsþekktan súkkulaðirisa Framkvæmdastjóri súkkulaðigerðarinnar Omnom á sér það markmið að tekjur fyrirtækisins vaxi í átt að veltu Bláa lónsins. Tveir æskuvinir standa að fyrirtækinu sem selur vörur til 500 verslana erlendis. Svissneskur fjárfestingasjóður á nú 30 prósenta hlut. 20.12.2017 10:30
Hyggst gefa út skuldabréf fyrir allt að 30 milljarða Stjórn Almenna leigufélagsins hefur samþykkt að gefa út skuldabréf á markaði fyrir allt að 30 milljarða króna. 20.12.2017 09:00
Mestur tími Samkeppniseftirlitsins fer í samgöngur og ferðamál Samkeppniseftirlitið varði í fyrra hátt í 35 prósentum af ráðstöfunartíma sínum í málefni sem tengjast samgöngu- og ferðamörkuðum. 20.12.2017 08:30
Vilja kaupa Siggi's skyr fyrir um 30 milljarða króna Eigendur The Icelandic Milk and Skyr Corporation eru í viðræðum við bandaríska fjárfesta um sölu á öllu fyrirtækinu. Virði þess talið vera tæplega 300 milljónir Bandaríkjadala. Eignarhlutur Sigurðar Kjartans Hilmarssonar, stofnanda fyrirtækisins, er um 25 prósent. 20.12.2017 07:45
Pitsurisi greiðir Birgi Bieltvedt 62 milljónir á ári fyrir ráðgjöf Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt fær greiddar um 500 þúsund evrur á ári frá Domino's í Bretlandi fyrir ráðgjafarstörf. Samningsbundinn út maí 2024. Hagnaður Domino's á Íslandi, Pizza Pizza, jókst um 38 prósent á fyrri árshelmingi. 20.12.2017 07:30
Hótel með 446 herbergjum til skoðunar á Hlíðarenda Ekki kemur fram hver umsækjandinn er en eigandi lóðarinnar sem um ræðir, Hlíðarenda 16, er félagið O1 ehf. 20.12.2017 07:00
Meðlimakortin flækja skilaréttinn í Costco Engin lög gilda um rétt neytanda til að skila vörum. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir samtökin reglulega fá erindi vegna jólagjafa. Ekki hægt að skipta gjöfum úr Costco nema hafa persónuupplýsingar um gefandann. 20.12.2017 06:00
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkar í nóvember Leita þurfi aftur til ársins 2013 til þess að sjá verð á bæði fjölbýli og sérbýli lækka milli mánaða, en það gerðist síðast í ágúst þess árs. 19.12.2017 18:16
Sjóðir GAMMA kaupa hlut í Arctic Adventures Sjóðir í stýringu hjá GAMMA Capital Management hafa keypt 15 prósent hlut í Arctic Adventures hf., fyrirtæki á sviði afþreyingar fyrir ferðamenn 19.12.2017 15:37
Verkfallið hafði áhrif á ferðir um 20 þúsund flugfarþega Fella þurfti niður 64 flug Icelandair, eða um helming allra fluga flugfélagsins, á meðan á verkfalli flugvirkja félagsins stóð yfir. 19.12.2017 14:41
Ráðast gegn losun koltvísýrings með hlutafjáraukningu upp á 1,5 milljarð Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Carbon Recycling International hyggst auka hlutafé sitt um 1,5 milljarða árið 2018. Stefnan er að draga úr losun koltvísýrings og nýta strandað vetni eða raforku til framleiðslu á metanóli í Evrópu og Kína. 19.12.2017 14:17
Björg ráðin til Tulipop Björg Arnardóttir hefur verið ráðin til Tulipop sem sérfræðingur í nytjaleyfum. 19.12.2017 12:56
Segir Björn Inga „siðlausasta einstakling“ sem hann hefur haft afskipti af Árni Harðarson, einn Dalsmanna sem eiga meirihluta í Pressunni ehf., segir Björn Inga hafa haft í hótunum við sig og Róbert Wessmann. 19.12.2017 12:10
Óskabein kaupir fjórðungshlut í Endor Fjárfestingin er liður í uppbyggingu Endor sem alþjóðlegs félags, en eigendur og stjórnendur stefna á markaði í Skandinavíu og Norður-Evrópu á komandi misserum. 19.12.2017 11:36
Pylsusamráðshringur fyrir rétt í Þýskalandi Réttarhöld hófust í Düsseldorf í morgun í máli þýska ríkisins gegn fjórum pylsuframleiðendum sem grunaðir eru um ólöglegt verðsamráð. 19.12.2017 10:48
Hlutabréf í Icelandair snarhækka eftir að samningar náðust Hækkunin nemur 6,59 prósentum það sem af er af degi. Samninganefndir Icelandair, Samtaka atvinnulífsins og Flugvirkjafélags Íslands skrifuðu undir nýjan kjarasamning klukkan fjögur í nótt og var verkfalli flugvirkja hjá Icelandair frestað um fjórar vikur. 19.12.2017 10:19
Fyrsta fiskiskip landsins sem knúið er af rafmótor sigldi til Reykjavíkur Nýtt línu- og netaskip útgerðarinnar Stormur Seafood er fyrsta fiskiskipið á Íslandi sem drifið er af rafmótor. 19.12.2017 08:24
Íslenskt app hjálpar börnum að læra tónlist Rannsókn sem gerð var á notkun íslenska smáforritsins Mussila leiddi í ljós mikla gagnsemi þess í tónlistarkennslu. Börn sem notuðu forritið til viðbótar við hefðbundna tónlistarkennslu sýndu 20,2% aukinn skilning í tónfræði. 19.12.2017 06:00
Áhugi fjárfesta á að nýta jarðvarma eykst Bill Gates, einn þekktasti fjárfestir í heimi, er byrjaður að fjárfesta í jarðvarmaverkefnum. Íslenskur fjárfestir telur áhugann á slíkri fjárfestingu eiga eftir að aukast. Helstu vísindamenn og verkfræðingar á sviðinu eru Íslendingar. 19.12.2017 06:00
Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro. 18.12.2017 21:15
GoMobile og Vodafone í samstarf Samningurinn hefur þegar tekið gildi og munu viðskiptavinir GoMobile nýtt inneignir sínar í fjarskiptaþjónustu hjá Vodafone á næstu dögum. 18.12.2017 16:54
Opna risastóran trampólíngarð í húsnæði Kosts Rush Iceland stefnir á opnun risastórs trampólíngarðs í húsnæði verslunarinnar Kosts, sem nýlega var lokað. Torfi Jóhannsson, maðurinn á bak við verkefnið, segir að stefnt sé á opnun snemma á næsta ári. 18.12.2017 14:33
Lagardère fer fram á lögbann á Isavia Farið hefur verið fram á að lögbann verði lagt á afhendingu Isavia á mikilvægum trúnaðargögnum um Lagardère til þriðja aðila sem Isavia hefur í sinni vörslu í kjölfar forvals um leigu á aðstöðu undir verslunar- og veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2014. 18.12.2017 13:19
Hlutabréf í Icelandair lækka flugið Verkfallið hófst klukkan 6 í gærmorgun og hefur valdið mikilli röskun á flugi Icelandair. Lækkun dagsins það sem af er nemur 3,26 prósentum. 18.12.2017 10:55
Frumkvöðlar saka ISAVIA um bellibrögð Fyrirtækið BaseParking segir ISAVIA, í krafti aðstöðu sinnar, gera því lífið leitt með alls konar bellibrögðum. Hefur kvartað til Samkeppniseftirlitsins vegna framferðis ríkisfyrirtækisins sem býður upp á sömu þjónustu og BaseParking. 18.12.2017 07:15
Fundi slitið án árangurs Árangurslitum fundi samninganefnda flugvirkja og Icelandair var slitið klukkan 4 í nótt. 18.12.2017 05:57
Fjórtán sagt upp hjá NLFÍ í Hveragerði Fjórtán starfsmönnum Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði hefur verið sagt upp störfum vegna fjárhagsörðugleika stofnunarinnar. Þá verður dvalargestum fækkað um þrjátíu prósent frá áramótum til að hagræða í rekstrinum. 17.12.2017 11:51
Jónsi í Sigur Rós og fjölskylda hans opnar verslun fulla af eigin hönnun Verslunin er til húsa í Fischersundi 3 og heitir einfaldlega Fischer. 15.12.2017 16:41
Mogginn birtir málsvörn Björns Inga Segist hann munu greina frá atburðarás Pressunnar í Morgunblaðinu á næstu vikum. Atburðarásin verður rakin frá því að hluthafar fjárfestu í félaginu en einnig mun hann fjalla um helstu leikendur auk þess sem hann fer um vítt og breitt svið. 15.12.2017 15:49
Eigandi 10-11 kaupir helmingshlut í Eldum rétt Eignarhaldsfélagið Basko, sem á og rekur meðal annars 10-11 verslanirnar, hefur undirritað kaupsamning um kaup á 50 prósent hlutafjár í Eldum rétt ehf. 15.12.2017 13:49
Fasteignasölur fengu dagsektir vegna ófullnægjandi verðmerkinga Neytendastofa ákvað þann 5. desember að veita sautján fasteignasölum dagsektir fyrir að uppfylla ekki þau skilyrði sem lög og reglur gera ráð fyrir í upplýsingagjöf um þjónustu. 15.12.2017 13:20
Sekt Securitas lækkuð um 40 milljónir Samkeppniseftirlitið hefur sektað Securitas um fjörutíu milljónir vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins og fyrir að hafa veitt Samkeppniseftirlitnu ófullnægjandi upplýsingar við rannsókn málsins. 15.12.2017 12:38
Hætta við mótmælin eftir tilkynningu Klakka Formaður Verkalýðsfélags Akraness og formaður VR höfðu boðað til mótmæla vegna ákvörðunar stjórnar Klakka að greiða stjórnendum félagsins 550 milljón króna kaupauka. 15.12.2017 12:01
Gurrý hættir hjá Reebok fitness Biggest loser þjálfarin Guðríður Erla Torfadóttir kveður Reebok fitness en hún var framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá 2014 til 2017. 15.12.2017 11:34
Ferðagleði landans stóreykur kortaveltu erlendis Vöxtur kortaveltu Íslendinga nam tæplega 12 prósentum í nóvember að raunvirði milli ára, samkvæmt tölum Seðlabankans. Sér í lagi var vöxturinn mikill í erlendri kortaveltu en einnig talsverður innanlands. Vöxtur erlendu kortaveltunnar nam 23 prósentum en innlendu 9 prósentum. 15.12.2017 11:25
Kristrún nýr aðalhagfræðingur Kviku Kristrún Mjöll Frostadóttir hefur verið ráðin aðalhagfræðingur Kviku banka og mun hún hefja störf um miðjan janúar næstkomandi. 15.12.2017 09:36
Konráð nýr hagfræðingur Viðskiptaráðs Hagfræðingurinn Konráð S. Guðjónsson mun taka við starfi Kristrúnar Frostadóttur sem hagfræðingur Viðskiptaráðs. Kristrún verður aðalhagfræðingur Kvikubanka. 15.12.2017 08:35
Stjórn Klakka vill hætta við bónusgreiðslur Stjórn Klakka hefur ákveðið að mæla með því við hluthafa félagsins að fyrirhugaðar kaupaukagreiðslur, sem hluthafafundur samþykkti á mánudag, verði dregnar til baka. 14.12.2017 18:13
LSR skorar á Klakka að endurskoða starfskjarastefnu Að mati stjórnar LSR felur starfskjarastefnan í sér óhófleg starfskjör til stjórnar og stjórnenda. 14.12.2017 17:00
10-11 sýknað af kröfum Íslandsstofu í deilunni um „Inspired by Iceland“ Hæstiréttur sýknaði 10-11 en dómnum hafði verið áfrýjað úr héraði. 14.12.2017 16:45
Segjast ekki hafa getað komið í veg fyrir bónuspott Klakka Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LV) segist ekki hafa getað komið í veg fyrir bónusgreiðslur stjórnenda og hluthafa Klakka upp á 550 milljónir króna vegna fyrirhugaðrar sölu á Lykli og vegna annarra eigna félagsins. 14.12.2017 15:06