Fleiri fréttir

Sprotar í sókn

Silja Dögg Gunnarsdóttir skrifar

Við eigum ekki að líta á skattívilnanir sem kostnað heldur leið til að auka tekjur okkar til framtíðar.

Óveðursský yfir Jerúsalem

Birgir Þórarinsson skrifar

Biðjið Jerúsalem friðar segir í Davíðssálmunum. Full ástæða er til að taka þessi orð alvarlega nú þegar Bandaríkin hafa tilkynnt að þau viðurkenni Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og muni flytja sendiráð sitt frá Tel Avív til borgarinnar helgu.

Skömmin er samfélagsins, ekki einstaklinganna

Fríða Rós Valdimarsdóttir skrifar

Á Íslandi í dag er mikil vakning um hverskonar kynbundið ofbeldi og hefur Jafnréttisstofa ekki farið varhluta af því. Þráðurinn í þeirri vakningu er að breyta samfélaginu til framtíðar með því að breyta menningu þar sem kynbundið ofbeldi er ekki lengur umborið.

Hreppaflutningar eldri borgara

Alda Björk Valdimarsdóttir skrifar

Kristjana Guðjónsdóttir, sjúkraliði með sérnám í öldrunarhjúkrun, sendir aðstandendum aldraðra tóninn í grein sinni, „Umönnun við aldraða á Akranesi til fyrirmyndar“ sem birtist á vef Vísis 7. desember síðastliðinn og finnst ekkert athugavert við það að aldraðir Reykvíkingar séu sendir á hjúkrunar- og dvalarheimili úti á landi. Hún segir „erfitt að skilja að það sé almennt ofviða fólki á besta aldri sem býr á höfuðborgarsvæðinu að heimsækja aldraða ættingja sína á hjúkrunarheimili, t.d. á Akranesi.“

Rannsóknamiðstöð gegn ofbeldi við Háskólann á Akureyri.

Dr. Sigrún Sigurðardóttir skrifar

Helstu niðurstöður doktorsrannsóknar minnar eru að afleiðingar kynferðislegs ofbeldis eru alvarlegar fyrir heilsufar og líðan og geta haft í för með sér svefnvandamál, kvíða, þunglyndi, verki, vefjagigt, félagslega einangrun, misnotkun áfengis, lyfja og annarra efna, afbrot, fangelsi og sjálfsvíg.

Að kenna, kenna í brjósti um eða kenna um?

Heimir Björnsson skrifar

Við sem kennum vitum hversu mikils virði það er að kenna. Að standa frammi fyrir hópi af nemendum og vita að verkefnið er að hjálpa þessum börnum meðal annars að mennta sig og þroskast. Á hvaða námstigi sem það er, er verkefnið alltaf það sama.

Skóli fyrir alla

Sara Dögg Svanhildarddóttir skrifar

Menntun fyrir alla eða skóli án aðgreiningar er eitt af stóru viðfangsefnum þeirra sem starfa við menntakerfið okkar þessi misserin.

Má ég kyssa þig?

Ragna Björg Guðbrandsdóttir og Lilja Gísladóttir skrifar

Ást og hrifning af annarri manneskju á aldrei samleið með ofbeldi. Hvort sem um er að ræða bein samskipti eða á netinu. Ungt fólk sem er að taka sín fyrstu skref í nánu sambandi á oft erfitt með að gera greinarmun á því hvað eru heilbrigð og/eða óheilbrigð samskipti.

„Dæmir sig sjálfur“

Skúli Magnússon skrifar

Leiðari ritstjóra Fréttablaðsins, Kristínar Þorsteinsdóttur sl. laugardag er helgaður erindi mínu á síðasta aðalfundi Dómarafélags Íslands. Þar gerði ég að umtalsefni ítrekaðan neikvæðan fréttaflutning blaðsins af málefnum dómara og dómstóla, meðal annars umfjöllun blaðsins um launamál dómara í ársbyrjun 2016.

Heilsa og líðan í forgrunni

Svandís Svavarsdóttir skrifar

Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar skipa heilbrigðismálin háan sess og þar er meðal annars tekið fram að geðheilbrigðisáætlun til ársins 2020 verði hrint í framkvæmd og hún fjármögnuð.

Jesús, jólin og skólinn

Dögg Harðardóttir skrifar

Einu sinni var maður sem hataði kristið fólk. Hann gekk svo langt að hann vildi drepa það. Hann taldi þessa kristnu kenningu mesta bull sem hann hefði heyrt og svo hættulega að það þyrfti að stöðva þá sem aðhylltust hana.

Stefna í öldrunarþjónustu – hugleiðingar við stjórnarskipti 2017

Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar

Fyrir réttu ári skrifaði ég langa og mikla grein með þessum titli, því þykir mér vissara að setja ártalið í þetta skipti svo hægt verði að aðgreina þær í skjölum mínum og ef einhverjir aðrir vilja finna þær og jafnvel geyma hjá sér.

Ábyrg ferðaþjónusta – eykur samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir og Ketill Berg Magnússon skrifar

Meðvitund um samfélagsábyrgð fyrirtækja er sífellt að aukast og æ fleiri fyrirtæki hafa breytt verklagi sínu svo þau hafi jákvæðari áhrif á samfélag sitt og náttúruna með því að hafa ábyrga ferðaþjónustu sem eðlilegan hluta af sínum rekstri.

Þarna fór Isavia yfir strikið

Kári Jónasson skrifar

Eiginlega er ríkisfyrirtækið Isavia ríki í ríkinu og lifir sjálfstæðu lífi utan allra siðferðilegra marka að manni finnst. Síðasta útspil fyrirtækisins sem hljóðar upp á að taka tæplega 20 þúsund krónur fyrir að leyfa rútu að hafa viðdvöl við flugstöðina í kannski eina klukkustund, eða lengur eða skemur.

Umönnun við aldraða á Akranesi til fyrirmyndar

Kristjana Guðjónsdóttir skrifar

Tilefni þessa greinarstúfs er umfjöllun á opinberum vettvangi um hjúkrunar- og dvalar­rými fyrir aldraða. Viðfangsefnið er kunnuglegt. Þjóðin eldist og er því vaxandi og algjörlega fyrirséð þörf á úrræðum fyrir aldraða.

Um Plastbarkamálið

Ingólfur Bruun skrifar

Plastbarkamálið er athyglisvert fyrir margra hluta sakir og mörg eru fórnarlömb ítalska læknisins Paolo Macchiarini, sjúklingar, læknar og stofnanir. Að mati undirritaðs er Paolo það sem kallað er á ensku "con man“ eða það sem við getum kallað blekkingameistari, þ.e.a.s. aðili sem nær trausti samferðarfólks og nýtir sér það til blekkinga.

Nýja stjórnin hækkar lífeyri aldraðra ekkert!

Björgvin Guðmundsson skrifar

Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð, ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Sáttmáli þessarar stjórnar var undirritaður 30. nóvember 2017. Nokkur eftirvænting ríkti eftir því hvernig þessi nýja stjórn yrði, til dæmis hvort Vinstri græn kæmu fram einhverjum af sínum stefnumálum og hvort lífeyrir aldraðra yrði hækkaður.

Menntamálin í forgangi

Skúli Þór Helgason skrifar

Borgarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun komandi árs á fundi sínum á þriðjudag og endurspeglar áætlunin áframhaldandi sókn á flestum sviðum. Skóla- og frístundastarfið hefur notið ákveðins forgangs frá því hagur borgarsjóðs tók að vænkast haustið 2016.

Stilling klukkunnar

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Þriðjudaginn 28. nóvember birtist ritstjórnargrein í Fréttablaðinu þar sem fjallað var um þá hugmynd að breyta stillingu klukkunnar hér á landi og seinka henni um eina klukkustund. Greinin er hófsamlega skrifuð, og getur undirritaður tekið undir flest sem þar er sagt. Eitt atriði þyrfti þó að leiðrétta.

Það sofa ekki öll börn á nóttunni

Þuríður Jónsdóttir skrifar

Fáir hafa heyrt um Smith-Magenis heilkenni (SMS) og þekkja einkenni þess. Heilkennið er vegna litningagalla. Gallinn felst í úrfellingu á 17. litningi, það vantar örlítið brot á litninginn.

Til þeirra sem gætu þurft á hjálp að halda

Úrsúla Ósk Lindudóttir skrifar

Ég hef lengi verið að velta því fyrir mér hvort að ég ætti að skrifa mína sögu fyrir ykkur til að lesa og sýna ykkur mína hlið og hvað mér finnst um þessi mál.

Íslensk gagnaver finna fjölina sína

Jóhann Þór Jónsson skrifar

Draumurinn um að laða erlenda tækni- og tölvurisa til Íslands hefur lengi einkennt umræðuna um uppbyggingu gagnaversþjónustu á Íslandi. Draumurinn um að einhver hinna stóru, Google, Apple eða Facebook, reisi hér gagnageymslu hefur þannig yfirskyggt starfsemi þeirra átta fyrirtækja sem hafa skipulega byggt upp sína þjónustu hérlendis á undanförnu árum með góðum árangri.

Höldum vöku okkar!

Valgerður Guðjónsdóttir skrifar

Nú til dags eru námsmöguleikar fólks fjölbreyttir, á öllum sviðum samfélagsins.

Börn á ofbeldisheimilum

Sigþrúður Guðmundsdóttir skrifar

Nýlega fékk Kvennaathvarfið viðurkenningu Barnaheilla fyrir framlag til mannréttinda barna, betri viðurkenningu er vart hægt að hugsa sér.

Vinnustaður er námsstaður

Kristín Þóra Harðardóttir skrifar

Breytingar á vinnumarkaði, fjórða iðnbyltingin, stafræn bylting, framtíðarvinnumarkaður, vélmenni og gervigreind eru áskoranir sem samfélagið stendur frammi fyrir.

Straumar og stefnur í stafrænni markaðssetningu 2018

Guðmundur Tómas Axelsson skrifar

Nú er árið senn á enda og helstu sérfræðingar heims keppast við að spá fyrir um helstu strauma og stefnur fyrir árið 2018, hvort sem það er í tækni, markaðssetningu, hönnun eða öðru.

Takk strákar!

Helga Hlín Hákonardóttir skrifar

Ég er búin að ætla að skrifa þessa grein í nokkra mánuði. Allt frá því að ég fékk hálfgert menningarsjokk á ráðstefnu í Lúxemborg þar sem ég var í panel og ræddar voru leiðir til að auka hlut kvenna í fjármálaheiminum.

Á hlíðarlínunni

Ellert B. Schram skrifar

Ný ríkisstjórn hefur verið skipuð. Við óskum henni góðs gengis, þótt stjórnarsáttmálinn varðandi málefni eldri borgara sé rýr, miðað við kosningaloforðin.

Þjónusta Stígamóta við fatlað fólk

Guðrún Jónsdóttir skrifar

Þann 23. nóvember sl. birtist í Fréttablaðinu grein eftir fyrrverandi starfskonu Stígamóta og formann Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Þau virðast álíta að sérhæfð þjónusta fyrir fatlað fólk hafi verið einstök á meðan starfskonan fyrrverandi gegndi starfinu, en að hún sé lítil sem engin núna.

Gamla Ísland vann

Bolli Héðinsson skrifar

Nýja ríkisstjórnin boðar engar sögulegar sættir, bara svo það sé alveg á hreinu.

Lúxus borgin Reykjavík

Sævar Þór Jónsson skrifar

Það fer ekki framhjá neinum sem skoðar fasteignaauglýsingar í blöðunum að mikið framboð er af stjarnfræðilega dýrum eignum í höfuðborginni.

Um súlur og höfuð sem stungið er í sandinn

Helgi Þorláksson skrifar

Í fésbókarfærslu sakar Vala Garðarsdóttir fornleifafræðingur einhverja andstæðinga hótelbyggingar í Víkurgarði um að "fara rangt með staðreyndir, villa fyrir um og stinga höfðinu í sandinn við öllu því sem er rétt og staðreynd í þessu máli“. Hún sakar þá um uppspuna og sinnuleysi um fornminjar.

Forníslenska og fimmaurar

Ívar Halldórsson skrifar

Ég hef margsinnis lent í því eins og aðrir að fá tóm augnaráð frá táningum þegar ég hef við góð tækifæri brugðið á það ráð að upphefja íslenska tungu með sígildu íslensku orðatiltæki.

Gleymdir þolendur

Hans Jónsson skrifar

Þegar við heyrum talað um heimilisofbeldi, eða sambandsofbeldi, þá sjáum við flest fyrir okkur sömu myndina, þá mynd sem að mestöll umræða tekur mynd af og málar.

Við stólum á alla, mig og þig, saman breytum við heiminum

Íris Björg Birgisdóttir og Þórleif Guðjónsdóttir skrifar

Á haustmánuðum hafa miklar sviptingar átt sér stað, ekki bara í íslenskum stjórnmálum heldur heiminum öllum. Fólk úr öllum þjóðfélagsstéttum hefur brotist fram gegn ægivaldi hefðanna, fengið fjölmiðla og samfélagið allt til að neita að samþykkja það hrópandi óréttlæti sem þolendur kynferðisbrota verða fyrir.

Dómsmorð í Hæstarétti?

Einar Valur Ingimundarson skrifar

Ég tel þvi að Benedikt Bogason hafi misbeitt valdi sínu og tek undir með Jóni Steinari, svona eru réttarmorð framin.

Á hlaupum undan ábyrgðinni

Áslaug Friðriksdóttir skrifar

Borgarstjóri telur sig hafa mikla samúð með heimilislausu fólki. Svo mikla að hann skammar sveitarfélögin í nágrenni Reykjavíkur fyrir að fara illa með fólk. Sveitarfélögin hafi ekki byggt nógu mikið af félagslegum íbúðum og að hans mati er ástandið því svona slæmt.

Áreitni 101

Halldóra Gunnarsdóttir skrifar

Ég er svo vön að vera áreitt, og það er bara einhvern veginn hluti af því að vera kona en það er algjörlega óþolandi, að þurfa alltaf að vera á varðbergi, að þurfa alltaf að vera hrædd þegar ég labba ein heim.

ADHD og háskólanám

Theodora Listalín Þrastardóttir skrifar

Nokkrum dögum fyrir 21 árs afmælið mitt var ég greind með ADHD.

Norðurslóðir eru lykilsvæði

Ari Trausti Guðmundsson skrifar

Við segjum gjarnan að loftslagsmálin séu gríðarlega mikilvæg og enn fremur að þar leiki norðurslóðir stórt hlutverk. Nú um stundir er hlýnun loftslags hér norður frá meira en tvisvar sinnum hraðari en sunnar á hnettinum.

Sjá næstu 50 greinar