Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Faraldurinn víða verri en í vor Þrátt fyrir að hafa tekist að draga verulega úr umfangi faraldurs nýju kórónuveirunnar í vor og í sumar, er staðan nú víðast hvar í Evrópu svipuð eða verri en þá. Bæði smituðum og dauðsföllum hefur farið hratt fjölgandi. 4.12.2020 15:18
Dæmdur fyrir að myrða tvo í Maniitsoq Dómstóll á Grænlandi dæmdi í gær 22 ára karlmann í ótímabundið fangelsi (d. forvaring) fyrir að hafa drepið tvo, karl og konu, á síðasta ári. 4.12.2020 15:03
Segir Kína ætla að drottna yfir Bandaríkjunum og heiminum öllum John Ratcliffe, æðsti yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, segir að ráðamenn í Kína séu að undirbúa sig fyrir átök við Bandaríkin. Hann segir að Bandaríkjamenn og lýðræðið hafi ekki staðið frammi fyrir jafn mikilli ógn síðan í seinni heimsstyrjöldinni. 4.12.2020 13:31
Spánverjar varir um sig gagnvart nýju bóluefni Meira en helmingur Spánverja er ekki tilbúinn að láta bólusetja sig með nýju bóluefni gegn Covid-19 um leið og það verður aðgengilegt ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar. Spænsk stjórnvöld ætla sér að bólusetja 15-20 milljónir manna fyrir mitt næsta ár. 4.12.2020 13:23
Hló þegar hann var spurður hvort það væri mikilvægt að Trump mætti Anthony Fauci verður meðal helstu ráðgjafa nýs Bandaríkjaforseta og mun jafnframt áfram sinna hlutverki sínu sem helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna. Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali CNN við Joe Biden og Kamölu Harris í gær. 4.12.2020 12:46
Veita engin ný leyfi til olíuleitar Danska þingið samþykkti í gær að veita engin ný leyfi til olíuleitar í Norðursjó. Loftslagsmálaráðherra landsins sagði ákvörðunina sögulega. 4.12.2020 11:34
Skýrsla tekin af Ivönku Trump vegna fjármálamisferlismáls Lögmenn frá dómsmálaráðherra Washington-borgar tóku skýrslu af Ivönku Trump, dóttur fráfarandi Bandaríkjaforseta og ráðgjafa hans, í tengslum við málsókn vegna meints misferlis með framlög til nefndar sem undirbjó innsetningarathöfn Trump árið 2017. 4.12.2020 11:01
Sjálfboðaliði í athvarfi Baskins bitinn af tígrisdýri Tígrisdýr í dýraathvarfi Carole Baskins í Flórída beit konu í gær og er sagt hafa næstum því rifið af konunni hendina. Konan var að fæða tígrisdýrið og er sögð hafa stungið hendinni inn í búrið fyrir mistök. 4.12.2020 10:51
Maður handtekinn vegna dauða ellefu ára stúlku á Grænlandi Lögregla á Grænlandi hefur handtekið 27 ára karlmann vegna gruns um að hafa drepið ellefu ára stúlku í Aasiaat á vesturströnd landsins aðfaranótt föstudagsins í síðustu viku. 4.12.2020 09:49
Sprengingin fleygði mönnum allt að 150 metra Fjórir létu lífið þegar sprenging varð í tanki í vatnshreinsistöð í Avonmouth, nærri Bristol í Bretlandi í gær. Þrír starfsmenn stöðvarinnar og einn verktaki dóu og einn mun hafa slasast en er ekki í lífshættu. 4.12.2020 09:40
Líkur á að fríverslunarsamningur náist hverfandi Líkurnar á því að fríverslunarsamningur milli Bretlands og Evrópusambandsins náist áður en Bretland segir skilið við Evrópusambandið eru hörfandi. Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir heimildamanni sem er hátt settur hjá breskum stjórnvöldum. 3.12.2020 23:45
Fyrstu skammtarnir komnir til Bretlands Fyrstu skammtar af bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech komu til Bretlands í kvöld. Birgðirnar voru fluttar í „sérstaka miðstöð á ótilgreindum stað“ og verður nú dreift um landið til bólusetningar. 3.12.2020 23:45
Lýsir áhrifunum sem Moderna-sprautan hafði á hann Bandarískur karlmaður sem tók þátt í bóluefnisrannsókn lyfjafyrirtækisins Moderna kveðst hafa fengið vægar aukaverkanir eftir seinni skammt. Hann segir reynsluna ekki beint „dans á rósum“ en kveðst hiklaust myndu láta sprauturnar aftur yfir sig ganga. 3.12.2020 23:01
Vandræði við bóluefnaframleiðslu Pfizer Lyfjaframleiðandinn Pfizer gerir ráð fyrir því að geta aðeins dreift helmingi þeirra Covid-19 bóluefnaskammta sem dreifa átti fyrir lok þessa árs. Að sögn framleiðandans er það vegna vandamála sem upp hafa komið við framleiðslu hráefna, sem nauðsynleg eru bóluefninu. 3.12.2020 22:07
Íran hafnar skilyrðum Bidens fyrir kjarnorkusamningi Íran hefur hafnað skilyrðum sem ný stjórn Joe Bidens, verðandi Bandaríkjaforseta, hefur sett vegna endurupptöku kjarnorkusamnings milli ríkjanna. 3.12.2020 18:26
Sonurinn var ekki fangi móður sinnar Kona á áttræðisaldri, sem talin var hafa haldið syni sínum föngnum í íbúð sinni í Haninge suður af Stokkhólmi í nær þrjá áratugi, er ekki lengur grunuð um saknæmt athæfi. Ekki hafa fundist neinar vísbendingar um að syninum hafi verið haldið í íbúðinni gegn vilja sínum. 3.12.2020 17:22
Flugvél í árekstri við bíl eftir nauðlendingu Flugmaður einkaflugvélar lenti í miklum vandræðum í Minnesota í Bandaríkjunum í gærkvöldi og þurfti hann að framkvæma nauðlendingu á hraðbraut hjá borgunum Minneapolis og Saint Paul. 3.12.2020 16:41
Mikil líkindi með framgöngu áströlsku sérsveitarinnar í Afganistan og kanadíska Sómalíu-hneykslinu Fyrrverandi varnarmálaráðherra Kanada segir að eina leiðin til að uppræta kerfislæg „menningarvandamál“ og endurheimta orðspor kanadíska hersins í kjölfar svokallaðs Sómalíu-hneykslis, hafi verið að leysa upp umrædda hersveit. 3.12.2020 16:34
Tunglfarið á leið til jarðar með mánagrjót Ríkismiðlar Kína segja að geimfarið Chang'e 5 sé nú á leið aftur til jarðarinnar eftir að hafa lent á tunglinu og tekið þaðan sýni. Geimfarið lenti á tunglinu fyrr í vikunni. 3.12.2020 16:01
Mikil sprenging nærri Bristol sögð mannskæð Slökkvilið, lögregla og aðrir eru með mikinn viðbúnað eftir stóra sprengingu í bænum Avonmouth, nærri Bristol í Bretlandi. Sprengingin varð í efnatanki við vatnshreinsistöð. 3.12.2020 14:34
Faraldurinn nær nýjum hæðum í Bandaríkjunum Faraldur nýju kórónuveirunnar náði methæðum í Bandaríkjunum í gær. 3.150 manns dóu og samtals voru fleiri en hundrað þúsund manns á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Rétt rúmlega 200 þúsund greindust smitaðir af Covid-19. 3.12.2020 14:09
Trump bölsótaðist út af kosningarúrslitunum í löngu ávarpi Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, endurtók framandlegar og stoðlausar ásakanir um stórfelld kosningasvik í forsetakosningum síðasta mánaðar í furðulegu þriggja stundarfjórðunga löngu ávarpi sem hann birti á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. 3.12.2020 12:41
Vilja losna við þvinganir, annars verði eftirlitsmenn reknir úr landi Þingmenn í Íran samþykktu á dögunum frumvarp um að meina eftirlitsaðilum Sameinuðu þjóðanna aðgang að kjarnorkustöðvum þeirra og að auka auðgun úrans. Það var gert í kjölfar morðs eins helsta kjarnorkuvísindamanns Írans í síðustu viku. 3.12.2020 11:43
Tugir einstaklinga smitaðir af Covid-19 eftir „swing“-ráðstefnu í New Orleans 41 einstaklingur hefur greinst með Covid-19 eftir að hafa sótt svokallaða „swing“-ráðstefnu í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum. Yfirvöld segja ráðstefnuna hafa verið viðburð sem stuðlaði að „ofurdreifingu“ kórónuveirunnar sem veldur Covid-19. 3.12.2020 10:33
Fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans látinn Zafarullah Khan Jamali, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, er látinn, 76 ára að aldri. Jamali lést af völdum hjartaáfalls á sjúkrahúsi í Rawalpindi, suður af höfuðborginni Islamabad. 3.12.2020 10:03
Forstjóri CDC spáir erfiðasta vetrinum í lýðheilsusögu Bandaríkjanna Robert Redfield, forstjóri bandarísku sóttvarnastofnunarinnar (CDC), varar við því að veturinn gæti orðið sá erfiðasti í lýðheilsusögu Bandaríkjanna. Spáir hann því að dauðsföll vestanhafs af völdum Covid-19 gætu náð 450 þúsundum í febrúar. 3.12.2020 06:16
Giscard d'Estaing fyrrverandi Frakklandsforseti látinn Valéry Giscard d'Estaing fyrrverandi forseti Frakklands er látinn, 94 ára að aldri. Andlát hans er sagt tengt veikindum af völdum Covid-19 en hann hafði nýverið verið lagður inn á sjúkrahús í Tours í Vestur-Frakklandi. 2.12.2020 23:35
Obama treystir Fauci og segist myndu láta sjónvarpa bólusetningu sinni Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti, segist hiklaust munu láta bólusetja sig ef Anthony Fauci, æðsti sóttvarnasérfræðingurinn vestanhafs, segir það óhætt. 2.12.2020 23:33
Járnfrúin vekur enn heitar tilfinningar Margaret Thatcher vekur enn heitar tilfinningar meðal Breta en ákvörðun bæjarráðsins í heimabæ hennar Grantham um að verja 100.000 pundum í athöfn þar sem stytta af „Járnfrúnni“ verður afhjúpuð hefur myndað gjá meðal íbúa. 2.12.2020 22:17
Menn ekki á eitt sáttir um ákvörðun og meint afrek Breta Bretar þurfa ekki lengur að vona að daglegt líf verði eins og áður var í vor; núna geta þeir verið þess fullvissir. Þetta segir forsætisráðherrann Boris Johnson en bresk heilbrigðisyfirvöld stefna á að hefja bólusetningar í næstu viku. 2.12.2020 20:39
Fimm og sex og sjö og... svindl? Getraunayfirvöld í Suður-Afríku rannsaka nú hvort nokkuð misjafnt hafi átt sér stað þegar lottótölurnar í PowerBall lottóinu þar í landi voru dregnar út á dögunum. 2.12.2020 19:10
Grunaði aldrei að nokkur annar byggi í íbúðinni Kona sem grunuð er um að hafa haldið syni sínum föngnum í íbúð sinni í grennd við Stokkhólm var sleppt úr haldi lögreglu eftir að sonur hennar var yfirheyrður í dag. Konan liggur þó enn undir grun í málinu. 2.12.2020 18:05
Sjáumst eftir fjögur ár! Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf þeim fregnum byr undir báða vængi í gær að hann hefði mögulega hug á því að bjóða sig aftur fram til forseta árið 2024. 2.12.2020 17:27
Hvetur mannkynið til að láta af „stríði gegn náttúrunni“ Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti mannkynið og þjóðir heims til þess að láta af „stríði sínu gegn náttúrunni“ og stefna að kolefnishlutleysi til þess að komast hjá verstu afleiðingum loftslagsbreytinga í dag. 2.12.2020 16:58
Afganir og Talibanar ná sínu fyrsta samkomulagi Samningamenn Talibana og ríkisstjórnar Afganistan hafa komist að þeirra fyrsta samkomulagi. Samkomulagið snýr að grunni áframhaldandi viðræðna og þar af leiðandi því að binda mögulega enda á átökin í landinu en einungis er um fyrsta skrefið af mörgum að ræða. 2.12.2020 16:44
Stefnir í fjórðu kosningar Ísrael á tveimur árum Útlit er fyrir að halda þurfi nýjar þingkosningar í Ísrael. Stjórnarandstöðufrumvarp um að slíta þingi var samþykkt á þinginu, Knesset, í dag. Þetta var þó einungis fyrsta umræða um frumvarpið. 2.12.2020 15:02
Þungvopnaðir ræningjar létu greipar sópa í tveimur bæjum Brasilíu Hópur þungvopnaðra bankaræningja myrti gísl og átti í skotbardaga við lögreglumenn á götum smábæjar í Brasilíu í dag. Svipað bankarán þar sem ræningjar beittu skotvopnum og sprengjum var framið í annarri brasilískri borg í gær. Í báðum tilvikum voru ræningjarnir á þriðja tug. 2.12.2020 14:24
Ræktað kjöt samþykkt í fyrsta sinn Matvælaeftirlitið í Singapúr hefur gefið græna ljósið á „kjúklingabita“ bandaríska fyrirtækisins Eat Just. Bitarnir eru úr raunverulegu kjúklingaprótíni en eru ræktaðir á tilraunastofu og því þarf ekki að slátra kjúklingi fyrir kjötið. 2.12.2020 13:13
Áratugurinn sem er að líða sá hlýjasti í sögunni Útlit er fyrir að árið 2020 verði á meðal þriggja hlýjustu ára frá því að mælingar hófust og verður áratugurinn sem nú er að líða sé hlýjasti frá upphafi. Áætlað er að um tíu milljónir manna hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna veðuröfga og náttúruhamfara á þessu ári. 2.12.2020 13:00
Hótunum rignir yfir embættismenn í Georgíu: „Þetta hefur allt gengið of langt“ Gabriel Sterling, embættismaður sem kemur að framkvæmd kosninga í Georgíu, vandaði Donald Trump, forseta, og öðrum háttsettum Repúblikönum ekki kveðjurnar á blaðamannafundi í gærkvöldi. 2.12.2020 12:30
Japanar mómtæla rússneskum eldflaugum á Kurileyjum Forsvarsmenn herafla Rússlands tilkynntu í gær að búið væri að koma fyrir nýjum eldflaugum á eyjum sem Rússar stjórna í Kyrrahafinu. Japanar gera einnig tilkall til eyjanna og hafa mótmælt því að loftvarnakerfi af gerðinni S-300V4 hafi verið komið fyrir á eyjunum. 2.12.2020 11:18
Rannsaka meintar mútugreiðslur í skiptum fyrir náðanir Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú mögulega glæpi sem tengjast mútugreiðslum til Hvíta húss Donalds Trump, fráfarandi forseta, í skiptum fyrir náðun. Ónefndir einstaklingar eru grunaðri um að hafa á laun boðið umtalsverð framlög í kosningasjóði í skiptum fyrir náðun eða mildun á refsingu. 2.12.2020 10:20
Skipstjóri ákærður vegna dauða 34 um borð í bandarísku skemmtiskipi Skipstjóri skemmtibátsins Conception hefur verið ákærður vegna dauða 34 farþega hans undan ströndum Kaliforníu í fyrra. Hann er sakaður um 34 manndráp og gæti tæknilega séð verið dæmdur í 340 ára fangelsi. 2.12.2020 10:01
Joshua Wong dæmdur í 13,5 mánaða fangelsi Dómstóll í Hong Kong hefur dæmt hinn 24 ára Joshua Wong, einn helsta leiðtoga mótmælenda þar í landi, í þrettán og hálfs mánaða fangelsi fyrir þátt sinn í ólöglegum mótmælum sem beindust gegn stjórnvöldum á síðasta ári. 2.12.2020 09:06
Bretar heimila notkun Pfizer bóluefnisins fyrstir þjóða Bresk stjórnvöld hafa heimilað notkun á bóluefni Pfizer/BioNTech gegn kórónuveirunni og eru Bretar fyrstir þjóða til að stíga það skref. 2.12.2020 07:22