Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnst tíu hús skemmdust þegar stór skriða féll Aurskriða féll á hús á Seyðisfirði um klukkan þrjú. Hún er mögulega sú stærsta sem fallið hefur á svæðinu á síðustu dögum. Ekki er vitað um nein slys á fólki að svo stöddu. Almannavarnarstig á Seyðisfirði hefur verið hækkað úr hættustigi í neyðarstig. Stefnt er að því að rýma bæinn. 18.12.2020 15:08
Borgarleikhúsið og Kristín sýknuð af kröfu Atla Rafns í Landsrétti Landsréttur sýknaði í dag Leikfélag Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur fyrrverandi Borgarleikhússtjóra af kröfu Atla Rafns Sigurðssonar leikara. Héraðsdómur dæmdi stjórn leikfélagsins og Kristínu í fyrra til að greiða Atla Rafni 5,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar og ærumeiðingar. 18.12.2020 15:05
Fjöldatakmarkanir eigi við innandyra sem utandyra Reglur um fjöldatakmarkanir gilda jafnt innandyra sem utandyra. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. 18.12.2020 14:48
Varasamar aðstæður vegna slitlagsskemmda Umtalsverðar slitlagsskemmdir hafa orðið á Bíldudalsvegi í Mikladal og Tálknafirði vegna veðurs. Unnið er að bráðabirgðaviðgerðum á svæðinu. 18.12.2020 14:37
Beina sjónum sínum að Fóðurblöndunni vegna tíðrar ólyktar í Laugarneshverfi og nágrenni Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hefur krafist þess að Fóðurblandan, sem staðsett er í Korngörðum í Reykjavík, grípi til aðgerða til að koma megi í veg fyrir að óþef leggi yfir nálæga byggð. Tilkynningum til borgaryfirvalda um vonda lykt á svæðinu hefur fjölgað mikið síðan haust. Forstjóri Fóðurblöndunnar segir enga breytingu hafa orðið í starfseminni sem skýri fjölgunina og kveðst vona að heilbrigðiseftirlitið sé í málinu ekki að hengja bakara fyrir smið. 18.12.2020 14:30
Býst við að 60 þúsund skammtar verði komnir í lok mars Heilbrigðisráðherra segir að samkvæmt áætlunum sem nú liggi fyrir komi um þrjú til fjögur þúsund skammtar af bóluefni Pfizer til landsins í hverri viku frá því í lok desember og út mars. Þá verði komnir um 60 þúsund skammtar til landsins. 18.12.2020 14:26
Bruninn á Bræðraborgarstíg: Ekki hægt að bjarga þeim sem létust Rannsakendur brunans á Bræðraborgarstíg telja líkur á að kveikt hafi verið í á tveimur stöðum í húsinu. Þeir telja að óháð því hvort um íkveikju var að ræða þá hafi fleiri samverkandi þættir haft áhrif á að eldsvoðinn varð jafn mannskæður og raun ber vitni. 18.12.2020 14:08
Kom til landsins til að bjarga eigum sínum en húsið fór degi seinna Cordoula Fchrand, eigandi einbýlishússins Breiðabliks við Austurveg á Seyðisfirði, segist ekki bjartsýn á að eitthvað sé eftir af eignum hennar í húsinu. Stór aurskriða úr Nautaklauf tók húsið með sér í nótt og flutti það til um fimmtíu metra 18.12.2020 13:20
Þau eru tilnefnd sem Maður ársins 2020 Vísir og Bylgjan standa fyrir vali á Manni ársins 2020 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið. Um fimm þúsund tilnefningar bárust í gegnum vefinn og í símatíma Reykjavík síðdegis. Þær hafa aldrei verið fleiri. 18.12.2020 13:00
Laun Katrínar munu líklega hækka um 170 þúsund krónur í sumar Björn Leví Gunnarsson Pírati segir miklar launahækkanir þingmanna ekki forsvaranlegar en boltinn sé hjá ríkisstjórninni. 18.12.2020 12:46
Áhyggjuefni að fólkið viti ekki hvar eða hvernig það smitaðist Sóttvarnalæknir segir áhyggjuefni að hluti þeirra sem greinst hafa með kórónuveiruna í gær hafi engin tengsl við aðra smitaða. Þetta sé vísbending um útbreiðslu veirunnar. Hann áréttar að nú sé mikill áhættutími genginn í garð. 18.12.2020 12:33
Enn fækkar þeim sem senda jólakort Enn fækkar í hópi þeirra sem senda jólakort. Einungis sextán prósent segjast ætla að senda jólakort í bréfpóst í ár, að því er segir í niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Um 57 prósent segjast ekki ætla senda nein jólakort í ár, en 23 prósent segjast ætla að senda jólakort með rafrænum hætti. 18.12.2020 12:21
Meirihluti atvinnuveganefndar bakkar í tollkvótamálinu Meirihluti atvinnuveganefndar hefur fallið frá fyrri tillögu sinni um auknar álögur á tollkvóta á innfluttar landbúnaðarvörur frá evrópusambandsríkjunum í þrjú ár og leggur nú til að álögurnar verði auknar um eitt og hálft ár. 18.12.2020 11:59
„Örugglega mjög erfitt fyrir marga bæjarbúa að upplifa þetta“ Þórhallur Árnason, varðstjóri hjá lögreglunni á Austurlandi, segir að nú þegar fari að birta verði staðan metin á Seyðisfirði varðandi það hvort mögulegt sé að fara í hreinsunarstarf eftir aurskriðurnar tvær sem féllu á bæinn í nótt. Hann segir bæjarbúa taka einn dag í einu. 18.12.2020 11:54
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar klukkan tólf tökum við stöðuna á hamförunum á Seyðisfirði þar sem heilt hús fór af grunni sínum í aurskriðu í nótt og færðist til um tugi metra. 18.12.2020 11:27
Helgustaðavegur lokaður vegna aurskriðu Aurskriða féll á Helgustaðaveg, út með Eskifirði milli Engjabakka og Högnastaða, í nótt og er vegurinn því lokaður. 18.12.2020 11:17
Gert að selja íbúðina: Lögregla kölluð til 27 sinnum á níu mánuðum Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp þann dóm að konu bæri að flytja úr íbúð sinni innan mánaðar og selja hana innan þriggja, vegna grófra og ítrekaðra brota á skyldum sínum gagnvart öðrum íbúum í umræddu fjölbýlishúsi. 18.12.2020 11:12
Lögreglan lokar Golfklúbbnum með látum Eigandi Golfklúbbsins er afar ósáttur með aðgerðir lögreglunnar og er kominn með lögfræðing sinn í málið. 18.12.2020 11:11
Gripið verði til viðeigandi ráðstafana og stuðnings vegna hamfaranna á Seyðisfirði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkisstjórnina fylgjast vel með gangi mála á Seyðisfirði. Verið sé að leggja mat á umfang þess tjóns sem orðið hefur í aurskriðunum sem fallið hafa á bæinn í vikunni og áhrif þeirra á samfélagið og sveitarfélagið. 18.12.2020 11:01
Tólf greindust innanlands Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Átta þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki. 18.12.2020 10:50
Ríkið sýknað af skaðabótakröfu vegna afleiðinga svínaflensusprautu Íslenska ríkið var í gær sýknað af skaðabótakröfu vegna drómasýki sem stefnandi taldi sig hafa fengið í kjölfar bólusetningar með lyfinu Pandemrix gegn svínaflensunni árið 2009. Einkenni fóru að gera vart við sig í kjölfar sprautunnar og var það niðurstaða sérfræðings í taugalækningum að hann hefði fengið drómasýki og slekjuköst í kjölfar bólusetningarinnar. 18.12.2020 10:49
Engin sannanleg tengsl milli bólusetningarinnar og drómasýki Engin sannanleg tengsl eru milli bólusetningar gegn svínaflensunni og drómasýki, að því er fram kemur í nýju svari Björns Rúnars Lúðvíkssonar, prófessors í ónæmisfræði, á Vísindavefnum. Þeir sem sýktust af H1N1-inflúensuveirunni hafi líklega verið í enn meiri áhættu á að þróa með sér drómasýki en þeir sem voru bólusettir með Pandemrix-bóluefninu. 18.12.2020 10:48
Þórólfur fékk neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fékk neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku dagsins í gær. Frá þessu segir í tilkynningu frá embætti landlæknis sem barst í gærkvöldi. 18.12.2020 10:21
Örlítill grenjandi minnihluti Steingríms er mikill minnihluti Athyglisverðar orðskýringar Steingríms J. Sigfússonar vekja athygli. 18.12.2020 10:08
Erfiðar aðstæður á Seyðisfirði: „Það er bara vatn alls staðar“ Enn er mikil úrkoma og bleyta á Seyðisfirði þar sem tvær aurskriður féllu í nótt. Urð, grjót og drulla er úti um allt í bænum en eiginlegt hreinsunarstarf getur ekki hafist fyrr en það dregur úr úrkomunni og birtir til. 18.12.2020 09:55
Vonast eftir skýrari svörum um stöðu bóluefnis í dag Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir verkefni dagsins vera að ræða við dreifingaraðila bóluefnis Pfizer og finna út hver staða mála sé gagnvart Evrópu. Tilkynning var send út frá lyfjarisanum í kjölfar umræðu vestanhafs um að vandræði hafi verið með framleiðslu og dreifingu bóluefnisins. 18.12.2020 09:47
Húsið sem skriðan hreif með sér væntanlega ónýtt Einbýlishúsið Breiðablik á Seyðisfirði er væntanlega ónýtt eftir að aurskriða tók húsið með sér í nótt og flutti það til um fimmtíu metra. Þetta segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, í samtali við fréttastofu. 18.12.2020 08:20
Aurskriða tók með sér hús á Seyðisfirði Tvær nýjar aurskriður féllu úr Nautaklauf á Seyðisfirði í nótt. Önnur skriðan tók með sér hús og flutti fimmtíu metra. 18.12.2020 06:42
Fundu fjölda hnífa og skotvopna á heimili manns í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í miðbæ Reykjavíkur um klukkan hálfátta í gærkvöldi. Er maðurinn grunaður um líkamsárás, eignaspjöll, fjársvik, brot á lyfjalögum og vörslu fíkniefna. 18.12.2020 06:33
Börnin úr Kjálkafirði í skóla á Þingeyri um Dýrafjarðargöng Foreldrarnir sem byggðu eyðijörð í Kjálkafirði kjósa að senda börnin sín í skóla á Þingeyri fremur en á Patreksfjörð og nýta sér þannig nýopnuð Dýrafjarðargöng. Þannig stytta þau tíma barnanna í skólaakstri úr þremur klukkustundum á dag niður í tvær klukkustundir á dag. 17.12.2020 23:11
Áfram hættustig á Seyðisfirði og aurskriða féll í Eskifirði Hættustig almannavarna mun áfram vera í gildi á Seyðisfirði vegna skriðuhættu. Þá er óvissustig einnig í gildi á Austurlandi vegna skriðuhættu. Þrjú hlaup urðu í Búðará í dag auk aurskriðuflóðs við Selsstaði sem lokaði vegi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Almannavarna. 17.12.2020 22:14
Fjöldi þekktra vill á framboðslista Samfylkingarinnar Samfylkingin í Reykjavík sendi í dag frá sér lista af fólki sem býður sig fram til uppstillingar á framboðslistum Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu Alþingiskosningar. Listinn er ekki endanlegur framboðslisti heldur gafst flokksmönnum tækifæri til að stinga upp á fólki sem gæti prýtt framboðslista samfylkingarinnar. 17.12.2020 21:55
Fyrrverandi ritstjóri DV greiðir knattspyrnu- og lögreglumanni bætur Lilja Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri DV, var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða fimm hundruð þúsund krónur í miskabætur og 1,7 milljónir króna í málskostnað. Það var vegna fréttar sem miðillinn birti um lögreglumann sem sakaður var um að hafa við embættisstörf slasað ungan mann í febrúar síðastliðnum. 17.12.2020 21:00
Samheldni á Seyðisfirði Einhverjar hreyfingar hafa verið í fjallinu á Seyðisfirði í kvöld. Það mun þó ekki vera mikið en mikið myrkur er og ekki hægt að skoða fjallið vel. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn, segir litlar hreyfingar hafa verið í fjallinu í allan dag. 17.12.2020 20:33
Utanríkisráðherra fer fram á endurskoðun tollasamninga við ESB Utanríkisráðherra hefur formlega óskað eftir því við Evrópusambandið að tollasamningur Íslands og sambandsins um landbúnaðarvörur verði endurskoðaður. Þá hafa Bretar og Íslendingar gert með sér nýjan loftferðasamning sem tryggir flugsamgöngur milli þjóðanna til framtíðar. 17.12.2020 19:21
Telur að skoða þurfi verkferla í tengslum við skriðuföll Sveitarstjóri Múlaþings segist sammála því að skoða þurfi verkferla í tengslum við skriðuföll. Guðrún Ásta Tryggvadóttir, sem á hús við Botnahlíð þar sem aurskriður féllu, hafði haft áhyggjur af mögulegum skriðuföllum og kallað eftir upplýsingum um verkferla. Henni var sagt að lítil hætta væri á skriðuföllum. 17.12.2020 19:08
Reiðir sig á hjálparsamtök svo börnin fái að borða Einstæð tveggja barna móðir sem býr við mikla fátækt kvíðir jólunum. Hún segir að þó að hún sé í fullri vinnu þá séu peningarnir búnir þann fimmta hvers mánaðar. Hún þurfi að reiða sig á hjálparsamtök til að geta gefið börnum sínum að borða. 17.12.2020 19:00
Áhyggjufullur yfir smærri hópamyndunum um jólin Sóttvarnalæknir segist áhyggjufullur yfir því að fólk safnist saman í mörgum litlum hópum yfir hátíðarnar. Enn sé mikil hætta á því að kórónuveiran dreifist manna á milli og segir hann ekki þurfa nema einn einstakling sem fer í marga litla hópa til þess að eitt stórt hópsmit blasi við okkur. 17.12.2020 18:12
Skoraði á lögregluþjóna að koma og mæta örlögunum Landsréttur hefur staðfest dóms Héraðsdóms Norðurlands eystra um að maður sem sagður er hafa brotið margsinnis á skilyrðum reynslulausnar sinnar eigi að klára afplánun sína. Alls 497 daga. Þann 11. desember voru lögregluþjónar kallaðir til heimahúss á Akureyri þar sem tilkynnt hafði verið um mikil öskur og læti. 17.12.2020 18:06
Þórólfur í sóttkví vegna smits hjá embætti landlæknis Þrír starfsmenn á sóttvarnasviði embættis landlæknis eru komnir í sóttkví. Það er eftir að Covid-19 smit greindist á vinnustaðnum. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, er meðal þeirra sem er í sóttkví. 17.12.2020 18:06
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óvissustig er enn á Austfjörðum og hættustig á Seyðisfirði þar sem aurskriður hafa fallið undanfarna daga. Ólíklegt er að íbúar á hættusvæði fái að snúa heim til sín í nótt Við verðum í beinni frá Seyðisfirði og ræðum við íbúa. 17.12.2020 18:00
Ekkert í hendi nema skammtarnir frá Pfizer Sóttvarnalæknir telur ekki misræmi í þeirri stöðu á bólusetningum gegn kórónuveirunni sem hann lýsti í dag og nýjustu upplýsingum um bóluefni frá ráðuneytinu. Ekkert sé í hendi nema að fram til mars 2021 fáum við bóluefni frá Pfizer fyrir 13 þúsund manns. 17.12.2020 16:41
Tilkomumikill strókur þegar tundurskeytið var sprengt Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar, með aðstoð áhafnarinnar á varðskipinu Tý, eyddi sprengjuhleðslu úr þýsku tundurskeyti frá seinni heimsstyrjöld úti fyrir Sandgerði laust fyrir klukkan tvö í dag. 17.12.2020 16:20
Ólíklegt að fólk geti farið heim til sín í nótt Íbúum sem eiga húsnæði á rýmingarsvæðinu á Seyðisfirði hefur líkt og í gær gefist færi á að huga að húsum sínum í fylgd lögreglu og björgunarsveita. Fréttastofa ræddi við Kristján Ólaf Guðnason yfirlögregluþjón nú rétt fyrir fjögurfréttir. 17.12.2020 16:08
Kúabændur segja verðlækkun á innfluttu kjöti ekki hafa skilað sér til neytenda Landsamband kúabænda segir verð á innfluttu kjöti ekki hafa lækkað hér á landi frá því álögur á tollkvóta voru lækkaðar um síðustu áramót þrátt fyrir að meðalverð til innflutningsaðila hafi lækkað. 17.12.2020 15:43