Fleiri fréttir

Interpol lýsir eftir íslenskum karlmanni sem ákærður er fyrir nauðgun

Alþjóðalögreglan Interpol lýsir á heimasíðu sinni eftir 50 ára gömlum íslenskum karlmanni sem ákærður er fyrir nauðgun, þjófnað og líkamsárás. Maðurinn er eftirlýstur að beiðni embættis héraðssaksóknara sem gefið hefur út handtökuskipun á hendur manninum.

Einar Brynjólfsson oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi

Einar Brynjólfsson, þingmaður Pírata, verður oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Hann skipaði einnig oddvitasæti flokksins fyrir síðustu kosningar. Þá skipar Guðrún Ágústa Þórdísardóttir annað sæti listans en það gerði hún sömuleiðis í síðustu kosningum.

Segir eftirliti með öryggismálum í íþróttahúsum á Akureyri að engu leyti ábótavant

Eftirliti með öryggismálum í íþróttahúsum á Akureyri er að engu leyti ábótavant að sögn Ellerts Arnar Erlingssonar, íþróttafulltrúa bæjarins. Unglingaráð körfuboltadeildar Þórs gagnrýndi bæjarstjórn Akureyrarbæjar harðlega í yfirlýsingu í gær í kjölfar þess að hættulegt óhapp varð í íþróttasal Glerárskóla á fimmtudaginn þegar körfuboltaæfingu var að ljúka.

Þjóðvegurinn opnar á ný

Hringvegurinn opnar á ný við Hólmsá í kvöld og bygging bráðabirgðabrúar við Steinavötn gengur vel. Dregið hefur úr vatnavöxtum á Suðausturlandi í dag og fer verkefnum björgunarsveita því fækkandi.

Gunnar Bragi ætlar að aðstoða Sigmund Davíð í kosningabaráttunni

Gunnar Bragi Sveinsson alþingismaður og fyrrverandi ráðherra ætlar að ganga til liðs við nýjan flokk Sigmunds Davíðs Gunnlaugssonar. Gunnar Bragi hefur þó ekki tekið ákvörðun um það hvort hann verði sjálfur í framboði fyrir flokkinn í alþingiskosningunum í október.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Vinstri græn tróna á toppnum í öllum skoðanakönnunum með 25-29 prósenta fylgi. Kosningabaráttan er komin á fullan skrið og eru flokkarnir að ljúka gerð lista fyrir kosningarnar sem verða hinn 28. október næstkomandi. Ágúst Ólafur Ágústsson snýr aftur í stjórnmálin fyrir Samfylkinguna og leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Þá gaf Brynjar Níelsson eftir oddvitasætið í sama kjördæmi hjá Sjálfstæðisflokknum og mun Sigríður Á. Andersen leiða listann. Við fjöllum nánar um þetta í kvöldfréttum Stöðvar 2 kl. 18:30.

Helgi Hrafn leiðir lista Pírata í Reykjavík

Úrslit liggja nú fyrir í prófkjöri Pírata í öllum kjördæmum að frátöldu Norðausturkjördæmi. Helgi Hrafn Gunnarsson er oddviti flokksins í Reykjavík fyir komandi þingkosningar sem fram fara þann 28. október næstkomandi.

Handtekinn tvisvar á einni viku

Maður á Suðurnesjum er meðal annars grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og að hafa hótað lögregluþjóni lífláti.

Utankjörfundur fer fram í Smáralindinni

Um næstu helgi hefst utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Smáralindinni. Hingað til hefur hún verið í Perlunni og Laugardalshöll dagana fyrir kosningar. "Sjoppulegt“ segir borgarfulltrúi en eigendur Kringlunnar segja ekkert pláss þar.

Hækka verð til sauðfjárbænda

Kaupfélag Skagfirðinga hyggst greiða 13 prósent hærra verð fyrir kjöt frá sauðfjárbændum en áður hafði verið tilkynnt. Þetta kemur fram í frétt frá KS. Lækka átti verðið til bænda um 35 prósent frá fyrra ári en nú er ljóst að sú lækkun verður ekki svo mikil.

Þyngsti dómur á Íslandi í 23 ár

Thomas Möller Olsen var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morð og fíkniefnasmygl í Héraðsdómi Reykjaness. Áhersla er lögð á að erlendir borgarar afpláni í heimalandi sínu.

Vill auka tengiflug um Keflavík

Ferðaþjónusta á jaðarsvæðum gæti fundið fljótt fyrir áhrifum af breyttu ferðamynstri okkar gesta. Þeir stoppa skemur og fara síður langt frá SV-horninu.

Ummæli ölvaðra lögreglumanna talin rót spillingarásakana

Hópur starfsmanna fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem sökuðu lögreglufulltrúa um spillingu eru sagðir hafa lagt allt að því fæð á hann. Fulltrúinn vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna ólögmætrar brottvikningar í dag.

Met slegið í magni úrgangs

Í ár hefur met verið slegið í magni úrgangs sem berst Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdastjóri Sorpu tengir aukninguna við batnandi efnahag þjóðarinnar.

Málið afar þungbært fyrir fjölskyldu Sanitu

Sanita Brauna var myrt á heimili sínu við Hagamel á fimmtudagskvöld í síðustu viku. Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið henni að bana er nú í gæsluvarðahaldi.

Þjóðvegurinn lokaður í viku hið minnsta

Þjóðvegur 1 er lokaður á tveimur stöðum í kjölfar mikilla vatnavaxta á Suðausturlandi undanfarna daga. Brúin yfir Steinavötn er afar löskuð og verður líklega ekki farið í lagfæringar að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, forstöðumanns hjá Vegagerðinni.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Brúin yfir Steinavötn og dómurinn yfir Thomasi Møller Olsen verður á meðal þess sem fjallað verður um í fréttatíma kvöldsins, sem hefst á slaginu 18:30.

Sjá næstu 50 fréttir