Skoðun

Reykja­nes­brautin í stokk – lífs­gæða­bylting fyrir íbúa Kópa­vogs

Einar Þorvarðarson og Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifa

Nú hefur verið kynnt niðurstaða úr hugmyndasamkeppni um nýja sýn fyrir næsta uppbyggingaráfanga Glaðheimasvæðisins. ASK arkitektar báru sigur úr býtum en vinningstillagan gerir ráð fyrir nútímalegu og sjálfbæru hverfi með áherslu á mannvænt og spennandi miðbæjarumhverfi fyrir Kópavog. Í tillögunni er lagt til að Reykjanesbraut verði lögð í stokk og þannig myndist fjöldi nýrra tenginga milli hverfa fyrir alla samgöngumáta og hugað verði um leið að hljóðvist. Saga þessa svæðis, sem fyrir ekki svo löngu geymdi hesthús og starfsemi hestamanna er áhugaverð.

Uppbygging fyrsta áfanga svæðisins gekk nefnilega hratt og vel fyrir sig og þar hafa nú risið glæsileg fjölbýlishús, hvert öðru fallegra, með torgi, grænu svæði, göngustígum og leiktækjum. Mikil áhersla var lögð á frágang lóða og hlýlegt umhverfi þannig að fólki liði vel í nærumhverfi heimila sinna.

Viðreisn gerði athugasemdir og tillaga dregin til baka

Talsverður vandræðagangur hefur hins vegar verið á skipulagsmálum almennt í Kópavogi síðustu fjögur árin, einnig varðandi næsta uppbyggingaráfanga þessa svæðis.

Fram kom deiliskipulagstillaga sem m.a. gerði ráð fyrir risastórum fjölbýlishúsum ofan í óbreyttri og umferðarþungri Reykjanesbrautinni. Bæjarfulltrúar Viðreisnar gerðu alvarlegar athugasemdir við þá tillögu, sem haldin var verulegum annmörkum að öðru leyti einnig. Hún var því formlega dregin til baka.

Þá kom fram önnur tillaga frá meirihlutanum sem einnig var afleit enda þótti okkur skipulagið með eindæmum gamaldags. Við höfum nú í tvígang farið með málið inn í bæjarstjórn sem sérstakt dagskrármál. Eftir miklar umræður í bæjarstjórn og fundi okkar í Viðreisn með bæjarstjóra og sviðsstjóra var samþykkt viðaukatillaga um að fara með svæðið í samkeppni. Niðurstaða hennar er sú að metnaðarlaust skipulag meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verður fellt úr gildi og nú getum við byrjað upp á nýtt með tillögu sem verður lífsgæðabylting fyrir íbúa á miðsvæði Kópavogs.

Markmið okkar með samkeppninni var að kalla eftir hugmyndum sem styrkja svæðiskjarnann í Smára, efla tengsl á milli hans og Lindanna, staðsetja þar tengistöð fyrir almenningssamgöngur og tengingu við alþjóðaflugvöllinn í Keflavík. Við vildum byggð sem styður við skapandi umhverfi, aukin lífsgæði og fjölbreytt mannlíf, verslun og þjónustu.

Smárinn er ekki bara miðkjarni fyrir allt höfuðborgarsvæðið heldur er hann tækifæri okkar Kópavogsbúa til að hanna miðbæ þar sem fólk nýtur þess að koma, ganga um torg og græn svæði og njóta mannlífs í nútímalegu borgarskipulagi.

Við í Viðreisn göngum full tilhlökkunar inn í kosningarnar með nútímalega framtíðarýn fyrir Lindir og Smára á borðinu og hlökkum til að búa til nútímalegt, sjálfbært og spennandi skipulag fyrir Glaðheimasvæðið. Svæði sem skv. hinni nýju tillögu Ask arkiteka verður tengt við Smárann með helstu umferðaræðina í stokk þannig að það þjóni blómstrandi mannlífi Kópavogsbúa framtíðarinnar. Það skiptir máli hvernig hverfi bæjarins eru hönnuð og þar þurfa þarfir íbúanna að vega þyngst.

Höfundar eru bæjarfulltrúar Viðreisnar í Kópavogi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×