Jól

Giljagaur kom til byggða í nótt

Grýla skrifar
Giljagaur faldi sig í básunum og froðunni stal.
Giljagaur faldi sig í básunum og froðunni stal. MYND/HALLDÓR

Giljagaur er annar jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann hafði yndi af mjólkurfroðunni og hélt sig mest í fjósinu.

Í ljóðinu Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum segir:

  • Giljagaur var annar,
  • með gráa hausinn sinn.
  • - Hann skreið ofan úr gili
  • og skauzt í fjósið inn.


  • Hann faldi sig í básunum
  • og froðunni stal,
  • meðan fjósakonan átti
  • við fjósamanninn tal.

Kvæði Jóhannesar úr Kötlum er birt með góðfúslegu leyfi Svans Jóhannessonar. Nánar má lesa um skáldið á vefnum johannes.is.

Hér fyrir neðan syngur Giljagaur Adam átti syni sjö í gömlu myndbandi frá Jolasveinarnir.is.








×