Erlent

Náðu mynd­bandi af hinum dular­fulla risa­smokk­fiski

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Skjáskot úr myndbandinu sem bandarísku vísindamennirnir náðu.
Skjáskot úr myndbandinu sem bandarísku vísindamennirnir náðu.
Bandarískum vísindamönnum tókst á dögunum að ná myndbandi af einni dularfyllstu skepnu undirdjúpanna, risasmokkfiski.

Risasmokkfiskur er stærsta djúpsjávardýrið og er talið að risasmokkfiskar verði venjulega 6 til 13 metrar á lengd og frá 50 kílóum og allt upp í 300 kíló að þyngd, að því er fram kemur á Vísindavefnum.

Fjallað er um nýja myndbandið sem náðist af dýrinu á vef Washington Post. Myndbandið var tekið á 759 metra dýpi í Mexíkóflóa og er fyrsta myndbandið af lifandi risasmokkfiski sem næst í bandarískri lögsögu.

Myndbandið var tekið í leiðangri 23 vísindamanna sem voru að rannsaka hvaða áhrif það hefur á skepnur að lifa í sjónum á um 1000 metra dýpi í algjöru myrkri.

Talið er að risasmokkfiskurinn sem vísindamennirnir náðu að mynda sé að minnsta kosti þrír metrar á lengd.





Það voru japanskir vísindamenn sem náðu fyrstu myndunum af lifandi risasmokkfiski í undirdjúpunum árið 2004.

Þá náðu þeir einnig fyrstu sýnunum úr lifandi dýri af þessari tegund en að öðru leyti er þekking vísindamanna á risasmokkfisknum nær eingöngu bundin við þau hræ af dauðum dýrum sem skolað hefur á land í gegnum tíðina.

Vegna þess hversu lítið er vitað um þessa dýrategund hafa margir þjóðsögur spunnist um risasmokkfiskinn og stærð hans og því meðal annars haldið fram að í undirdjúpunum lifi dýr sem sé allt að 20 metrar á lengd að því er segir í grein á Vísindavefnum.

Sem dæmi um þjóðsögu sem talið er að megi rekja til risasmokkfisksins er sagan af sæskrímslinu Kraken, eða Krakanum, á Norðurlöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×