Viðskipti innlent

Hrafnhildur Sif ráðin forstöðumaður hjá Advania

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Hrafnhildur Sif Sverrisdóttir.
Hrafnhildur Sif Sverrisdóttir. Mynd/Advania
Hrafnhildur Sif Sverrisdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður veflausna Advania. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Hrafnhildur hefur starfað hjá Advania og forverum fyrirtækisins í tæp 13 ár og gegndi síðast starfi deildarstjóra viðmótslausna og hönnunar á veflausnasviði. Áður starfaði Hrafnhildur sem verkefnastjóri hjá Árvakri, D3 og þar á undan sem kortagerðasérfræðingur hjá Landmati og verkfræðistofunni Hnit.

Hrafnhildur hefur lokið meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og í landakortagerð frá þýska tækniháskólanum í Karlsruhe.

„Það felst mikið öryggi í því að geta sótt reynslumikinn stjórnanda eins og Hrafnhildi til að leiða veflausnasvið Advania. Að fá stjórnanda sem kemur inn svo að segja hlaupandi er mikill kostur þar sem allt er á fleygiferð í hinum stafræna heimi um þessar mundir,“ er haft eftir Önnu Björk Bjarnadóttur, framkvæmdastjóri ráðgjafar og sérlausna hjá Advania, í tilkynningu.

Veflausnasvið sér meðal annars um að forrita sérlausnir, innri vefi, vefverslanir og þjónustugáttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×