Innlent

Icelandair með áætlun komi til kyrrsetningar

Ari Brynjólfsson skrifar
TF-ICE vél Icelandair af gerðinni Boeing 737 MAX 8.
TF-ICE vél Icelandair af gerðinni Boeing 737 MAX 8. Fréttablaðið/Anton Brink
Icelandair er með tilbúna aðgerðaáætlun ef flugmálayfirvöld ákveða að kyrrsetja Boeing 737 Max 8 vélar flugfélagsins.

Á tæplega fjórum og hálfum mánuði hafa tvær slíkar þotur hrapað stuttu eftir flugtak, önnur í Indónesíu í fyrra og hin í Eþíópíu í fyrradag. Flugmálayfirvöld í tveimur löndum hafa kyrrsett vélar hjá alls á annan tug flugfélaga. Mörg flugfélög munu þó halda áfram að nota sínar vélar, þar á meðal American Airlines, Southwest og Icelandair. 

Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair, á ekki von á því að vélarnar þrjár verði kyrrsettar en það verði þungt fyrir flugfélagið ef til þess kemur.

„Við höfum fengið ýmsar fyrirspurnir frá farþegum um þetta atvik. Fólk er að spyrja um vélartegundir,“ segir Jens. Hann þekkir ekki dæmi þess að farþegar hafi afbókað flug.

Ekki er búið að ákveða hvort þrjár vélar Icelandair verði kyrrsettar. „Við þurfum að vera með áætlun fyrir allt sem getur gerst,“ segir Jens. Hann gat ekki svarað í hverju áætlunin felst, hvort notast verði við aðrar vélar eða flug felld niður. „Það yrði auðvitað þungt fyrir okkur ef vélarnar verða kyrrsettar. Við vonumst bara til þess, og erum ágætlega bjartsýn, að svo verði ekki. Við vinnum út frá því.“

Málið hefur verið rætt hjá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. „Við teljum okkur ekki hafa nógu miklar forsendur til að gefa neitt út. Það liggur ekkert fyrir,“ segir Lára Sif Christiansen, framkvæmdastjóri FÍA.

737 Max 8 vélarnar eru nýjar, fyrsta vélin var afhent árið 2017. Alls er búið að afhenda 350 vélar en nú hafa um 100 þeirra verið kyrrsettar. Um helgina hrapaði vél Ethiopian Air­lines sex mínútum eftir flugtak, allir 157 um borð fórust.

Vél indónesíska flugfélagsins Lion Air hrapaði á svipaðan máta í október í fyrra. Vélin hrapaði í Jövuhaf tólf mínútum eftir flugtak, 189 létu lífið. Niðurstöður rannsakenda hafa ekki verið gerðar opinberar en talið er að hreyflarnir hafi enn verið í gangi þegar vélin skall í hafið. Veður og skyggni var gott. Farþegar sem voru um borð í næstsíðasta flugi vélarinnar sögðu að þeir hefðu fundið lykt af brenndu gúmmíi ásamt því að vélin átti í erfiðleikum með að halda flughæð.

Vél norska flugfélagsins Norwegian nauðlenti í Íran á leið frá Dúbaí til Óslóar 14. desember síðastliðinn eftir að bilun kom upp í hreyfli. Flugfélagið mun ekki kyrrsetja sínar 18 vélar að svo stöddu.

Jens segir að Icelandair sé í stöðugu sambandi við Boeing, líka vegna þessa máls. Hann segir það ekki liggja fyrir hvert vélarnar fljúgi á næstunni. „Þeim er raðað svolítið niður eftir hentisemi. Það liggur ekki fyrir. Það kemur fram í bókunum fólks hver vélartegundin er.“


Tengdar fréttir

Farþegar Icelandair hringja inn vegna slyssins

Þrjár slíkar þotur eru í íslenska flugflotanum og segir framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair ekkert benda til þess að Icelandair muni kyrrsetja sínar vélar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×