Lífið

Sómasamningur Hatara komi í veg fyrir skilaboð á sviðinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Felix Bergsson er spenntur fyrir atriði Íslendinga.
Felix Bergsson er spenntur fyrir atriði Íslendinga.
„Ég er í rútunni og er á leiðinni aftur upp á hótel. Við vorum að skoða keppnishöllina,“ segir Felix Bergsson, fararstjóri íslenska Eurovision hópsins, en hann er nú staddur í Tel Aviv. Hatari mun taka þátt fyrir Íslands hönd í maí og flytja þar lagið Hatrið mun sigra 14. maí

„Okkur hefur verið tekið vel og höllin lítur vel út. Hún er ekki sú stærsta sem maður hefur komið í. Þarna verða 7500 áhorfendur og það er bara alveg nóg. Sviðið verður mjög stórt og tæknilegt og hrikalega flott. Þetta verður geggjað show og þeir eru búnir að sýna okkur aðeins hvað þeir ætla gera og þetta verður bara hrikalega flott hjá þeim.“

Felix hefur ekki orðið var við það að íslenska atriðinu sé tekið illa í Ísrael.

„Menn eru kannski aðeins að ræða þetta sín á milli og það hafa verið eitthvað um mótmæli og annað slíkt en ég hef ekki áhyggjur af þessu þegar að keppninni kemur. Það viðhorf sem við höfum fengið hefur bara verið mjög jákvætt. Það er bara mikil stemning fyrir Hatara.“

Hann segist ekki hafa áhyggjur af því meðlimir Hatara komi fram með skilaboð þegar á sviðið er komið í Tel Aviv.

„Þeir eru búnir að skrifa undir samning við okkur að þeir ætla sér að gera þetta af sóma og ég hef enga ástæðu að ætla nema þeir geri það. Þeir eru frábærir þessir drengir og þetta unga fólk í þessari sviðslistagrúbbu sem kallar sig Hatara. Við höfum ekki upplifað svona spennu fyrir atriðinu í mörg mörg ár.“

Hér að neðan má hlusta á viðtalið sem var í Bítinu á Bylgjunni í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×