Viðskipti erlent

Rúm 40 prósent allra 737 Max verið kyrrsettar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tvær Boeing 737 Max 8. á flugbraut í Renton í Washington. Bandarísk flugmálayfirvöld hafa farið fram á að gerðar verði lagfæringar á þotunum.
Tvær Boeing 737 Max 8. á flugbraut í Renton í Washington. Bandarísk flugmálayfirvöld hafa farið fram á að gerðar verði lagfæringar á þotunum. Getty/Stephen Brashear
Ástralir, Singapúrar og stærðarinnar flugfélög í Brasilíu og Mexíkó hafa öll kyrrsett vélar af gerðinni Boeing 737 Max 8. Indónesar og Kínverjar höfðu áður gert slíkt hið sama eftir að þota þessarar gerðar fórst um helgina, í annað sinn á innan við hálfu ári.

Alls voru rúmlega 370 Boeing 737 Max 8 þotur í umferð áður en vél Ethiopian Airlines hrapaði skömmu eftir flugtak á leið sinni til Naíróbí á sunnudag. Alls fórust 157 manns í slysinu.

Upp hafa vaknað spurningar um öryggi umræddrar flugvélagerðar, ekki síst í ljósi þess að Boeing 737 Max-þota Lion Air hrapaði í Jövuhaf í október síðastliðnum með þeim afleiðingum að 189 biðu bana.

Virði þessa stærsta flugvélaframleiðanda heims hefur lækkað um milljarða dala frá því að markaðir opnuðu á mánudag. Skyldi engan undra, þegar þetta er skrifað er búið að kyrrsetja rúmlega 40 prósent allra Boeing 737 Max 8 véla í heiminum, 97 þeirra í Kína. Engin flugvélagerð hefur selst jafn vel í sögu Boeing en flugfélög um allan heim höfðu pantað rúmlega 4100 slíkar vélar fyrir slys helgarinnar. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort að það muni hafa áhrif á þessar útistandandi pantanir.

Icelandair tók í notkun Boeing 737 Max 8-vélar á liðnu ári.Vísir/jói K
Kyrrsetning singapúrskra yfirvalda hefur áhrif á fjölda flugfélaga sem reiða sig á umræddar vélar. Má þar nefna SilkAir, dótturfélag Singapore Airlines, auk China Southern Airlines, Garuda Indonesia, Shandong Airlines og Thai Lion Air. Ástralir ákváðu jafnframt að kyrrsetja Boeing-þoturnar þrátt fyrir að ekkert ástralskt flugfélag reiði sig á umræddar vélar. Kyrrsetning Ástrala hefur því aðeins áhrif á Fiji Airways, sem og fyrrnefnt SilkAir.

Sem stendur eru Kína, Indónesía, Ástralía og Singapúr einu þjóðríkin sem hafa kyrrsett Boeing 737 Max 8. Bandarísk flugmálayfirvöld hafa þó gert kröfu um gerðar verði lagfæringar á vélunum, þá sérstaklega á stýrikerfinu og búnaði sem ætlað er að koma í veg fyrir ofris.

Fjölmörg flugfélög hafa hins vegar hætt notkun vélanna að eigin frumkvæði. Má í því samhengi nefna stærsta flugfélag Brasilíu, GOL, sem var með sjö slíkar þotur í flota sínum auk hins mexíkóska Aeroméxico sem reiddi sig á sex Boeing 737 Max 8. Sömu sögu má segja um Cayman Airways og Comair.

Icelandair, sem er með 3 samskonar þotur í flota sínum, hefur hins vegar ekki tekið ákvörðun um kyrrsetningu vélanna - þrátt fyrir áhyggjur viðskiptavina. Fulltrúar flugfélagsins hafa veitt skýr svör á síðustu dögum, aðspurðir um hvort farþegar Icelandair þurfi að óttast um öryggi sitt: Nei, flugfélagið ber enn fullt traust til Boeing 737 Max 8.

Sem fyrr segir voru á fjórða hundrað slíkra véla í háloftunum fyrir kyrrsetninghrinu síðustu daga. Þær hafi flogið þúsundir flugleggja í viku hverri án nokkurra vandkvæða. Engu að síður sé Icelandair með tilbúna aðgerðaráætlun, komi til þess að flugmálayfirvöld kyrrsetji þoturnar.


Tengdar fréttir

Farþegar Icelandair hringja inn vegna slyssins

Þrjár slíkar þotur eru í íslenska flugflotanum og segir framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair ekkert benda til þess að Icelandair muni kyrrsetja sínar vélar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×