Viðskipti innlent

Hættur í bankaráði Landsbankans

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Guðmann Pétursson.
Jón Guðmann Pétursson. Landsbanki Íslands
Jón Guðmann Pétursson hefur sagt sig úr bankaráði Landsbankans. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallarinnar í kvöld. Engin skýring er gefin á úrsögn Jóns Guðmanns.

Jón Guðmann var fyrst kjörinn í bankaráð Landsbankans hf. í apríl 2016. Landsbankinn þakkar Jóni Guðmanni „fyrir öflugt starf í þágu bankans á undanförnum árum.“

Önnur í bankaráðinu eru Helga Björk Eiríksdóttir formaður, Berglind Svavarsdóttir varaformaður, Einar Þór Bjarnason, Hersir Sigurgeirsson og Sigríður Benediktsdóttir.

Bankaráð Landsbankans og stjórn Íslandsbanka voru bæði tekin á beinið af Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra í bréfi á dögunum. Bjarni taldi að fyrirmæli ráðuneytisins um hófsemi í launahækkunum bankastjóranna hafi verið hunsuð, laun bankastjóra ríkisbankanna tveggja hafi verið ákveðin úr hófi. Þau væru leiðandi og við það verði ekki unað.

Aðalfundi frestað

Athygli vakti á dögunum þegar bankaráð Landsbankans ákvað að fresta aðalfundi bankans sem fara átti fram miðvikudaginn 20. mars. Var sú skýring gefin að ekki hefði gefist nægur tími til að ganga frá endanlegum tillögum fyrir fundinn. Ákveðið var að halda aðalfundinn fimmtudaginn 4. apríl 2019.

Á vef bankans er fjallað um feril Jóns Guðmanns sem er fæddur árið 1959.

Hann lauk Cand. oecon. prófi frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1982 og starfaði sem viðskiptafræðingur hjá Endurskoðunarskrifstofu Björns & Ara árin 1982-1983. Jón var fjármálastjóri sjálfseignarstofnana Varnarliðsins árin 1984-1987, fjármálastjóri Hampiðjunnar árin 1987-2002 og forstjóri árin 2002-2014.

Jón hefur setið í stjórnum fjölmargra innlendra og erlendra fyrirtækja, þar á meðal í stjórn Hampiðjunnar árin 2006-2014 og í stjórnum dótturfélaga hennar í Danmörku, Írlandi, Litháen og fleiri löndum, stjórn Royal Iceland frá árinu 2014, stjórn Iceland Seafood International árin 2009-2011, stjórn Vaka árin 2002-2004 og í stjórn Kauphallar Íslands árin 1996-1999. Þá var Jón í reikningsskilaráði Íslands árin 2001-2004 og sat í stjórn Lífeyrissjóðs Framsýnar árin 2002-2005.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×