Tvö mörk og tvær stoðsendingar frá Messi er Barcelona kláraði Lyon

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lionel Messi fagnar.
Lionel Messi fagnar. vísir/getty
Lionel Messi skoraði tvö mörk er Barcelona vann 5-1 stórsigur á Lyon í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar er liðin mættust á Camp Nou í kvöld.

Messi skoraði fyrsta markið úr vítaspyrn á átjándu mínútu og það var svo fyrrum Liverpool-maðurinn, Philippe Coutinho, sem tvöfaldaði forystuna á 31. mínútu.

Börsungar í þægilegri stöðu í hálfleik en það fór um einhverja er Lucas Tousart minnkaði muninn fyrir Frakkana á þrettándu mínútu síðari hálfleiks.







Messi gerði út um vonir Lyon með marki á 78. mínútu og þeir Gerard Pique og Ousmane Dembele bættu við sitthvoru markinu áður en yfir lauk. Lokatölur 5-1.

Barcelona er því komið í átta liða úrslitin en liðið datt út á ótrúlegan hátt gegn Roma á síðustu leiktíð. Þeir eru væntanlega staðráðnir í að gera betur í ár.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira