Innlent

Ógnaði ellefu ára dreng með eggvopni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Atvikið átti sér stað í Breiðholti.
Atvikið átti sér stað í Breiðholti. Vísir/vilhelm
Ungur maður ógnaði ellefu ára dreng með eggvopni á bílastæði við sundlaug í Breiðholti á sjöunda tímanum í gær. Faðir drengsins tilkynnti málið til lögreglu.

Í dagbók lögreglu segir að drengurinn hafi náð að hlaupa heim og láta föður sinn vita. Ekki fengust frekari upplýsingar um málið.

Klukkan hálf níu í gærkvöldi var svo tilkynnt um ónæði frá íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Þrjár manneskjur voru í íbúðinni og eru þær grunaðar um vörslu fíkniefna. Skýrsla var tekin af einum á vettvangi en par í mjög annarlegu ástandi var handtekið og vistað í fangageymslu lögreglu þar til hægt verður að ræða við það.

Einnig stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nokkra ökumenn í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×