Fótbolti

Hannes spilar ekkert en er númer eitt hjá Hamrén

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hannes Þór Halldórsson fær ekkert að spila með Qarabag.
Hannes Þór Halldórsson fær ekkert að spila með Qarabag. vísir/getty
Hannes Þór Halldórsson verður áfram markvörður númer eitt hjá íslenska landsliðinu þrátt fyrir að vera ekkert að spila með félagsliði sínu Qarabaq í Aserbaídjan en þetta staðfesti Erik Hamrén, landsliðsþjálfari, á blaðamannafundi í dag.

Hannes hefur verið langbesti markvörður Íslands um árabil og verið lykilmaður í uppgangi liðsins undanfarin ár. Hann er aftur á móti ekki í góðum málum hjá félagsliði sínu og fær ekkert að spila þessa dagana.

Breiðhyltingurinn spilaði síðast leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar 29. nóvember á síðasta ári og fékk þar á sig sex mörk í 6-1 tapi en síðan þá hefur hann annað hvort ekki verið í hópnum en setið á bekknum.

Hann spilaði síðast deildarleik 11. nóvember á síðasta ári en hefur verið ónotaður varamaður í hverjum einasta deildarleik síðan að hann kláraði þær 90 mínútur.

Rúnar Alex Rúnarsson er ekkert í mikið betri málum en hann missti stöðu sína í desember hjá Dijon og var ónotaður varamaður í deildinni í ellefum leikjum í röð. Hann spilaði þó fjóra bikarleiki á sama tíma og kom aftur inn í liðið í deildinni á móti PSG um helgina.

Eini markvörðurinn sem er að spila af þeim þremur sem valdir voru í hópinn í dag er Ögmundur Kristinsson. Hann er búinn að spila hverja einustu mínútu í þeim 24 leikjum sem búnir eru í grísku úrvalsdeildinni þar sem að hann spilar með Larissa.

Rúnar og Ögmundur þurfa samt sem áður að sætta sig við að að Hannes Þór er áfram númer eitt.


Tengdar fréttir

Hamrén: Ég vona að Kolbeinn verði klár í júní

Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var spurður út í framherjamál íslenska landliðsins fyrir leikina á móti Andorra og Frakklandi í undankeppni EM 2020 en aðeins tveir hreinræktaðir framherjar eru í íslenska hópnum að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×