Skoðun

Þrúgur gleðinnar

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Sjálfsagt er dældum og ryðblettum á sál minni um að kenna að ég hef löngum heillast af átökum og illdeilum hvers konar. Helst samt þegar ég á ekki hlut að máli og get notið þess að fylgjast með úr hæfilegri fjarlægð, nú eða skrifa um, þegar þeir einir eigast við að ég hirði aldrei þó að drepist.

Ég hef upplifað nokkur verkföll á passlega langri ævi án þess þó að hafa þurft að leggja niður störf sjálfur. Líklega þess vegna sem mér finnst eitthvað ómótstæðilega heillandi við harðar vinnudeilur.

Ég var þrettán ára þegar stóra BSRB-verkfallið skall á 1984 og á alveg sérstaklega hlýjar og rómantískar bernskuminningar frá þeim tíma. Eðlilega. Þetta var geggjað. Skólinn lokaður í mánuð og við krakkarnir nutum lífsins og frelsisins í botn.

Ég varð helst var við neikvæðar afleiðingar verkfallsins þegar fór að bera á skorti á Winston-sígarettum. Þetta var í þá daga þegar börn gátu keypt sígarettur úti í sjoppu án þess að framvísa miða frá foreldrum.

Í verkfallinu þurfti maður samt að hafa miða. Eða kannski frekar lista. Pabbi reykti Winston og ef þær voru ekki til þá átti ég fyrst að biðja um Gold Coast, síðan Royale en ekki kaupa Viceroy nema í algerri neyð. Sem betur fer minnir mig að verkfallinu hafi lokið áður en pabbi þurfti að reykja mikið af því ógeði.

Þetta voru stórkostlegir umbrotatímar fyrir áhyggjulausa krakka en þegar maður sleppir bernskurómantíkinni þá eru verkföll helvítis fokkings fokk og að mér læðist sá illi grunur að ef allt fer hér í bál og brand á næstunni muni börnin mín ekki horfa til baka með glýju í augunum þegar þau nálgast fimmtugt.




Skoðun

Sjá meira


×