Innlent

Mannvit sendir frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar um Fossvogsskóla

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Leit hefur staðið yfir að húsnæði undir starfsemi Fossvogsskóla síðan mygla fannst í skólanum.
Leit hefur staðið yfir að húsnæði undir starfsemi Fossvogsskóla síðan mygla fannst í skólanum. Vísir/vilhelm

Verkfræðistofan Mannvit ítrekar að stofan hafi ekki framkvæmt úttekt á húsnæði Fossvogsskóla heldur var um um að ræða ryksýnatöku á afmörkuðum hluta húsnæðisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Mannviti sem birt var á vef fyrirtækisins í vikunni.



„Með vísan í fréttaflutning síðustu daga um rakaskemmdir í Fossvogsskóla telur Mannvit rétt að koma á framfæri að skoðun Mannvits var ekki úttekt á húsnæðinu. Verkbeiðnin sem Mannviti barst frá Reykjavíkurborg var um ryksýnatöku á afmörkuðum hluta húsnæðisins. Skoðun og sýnataka var framkvæmd í samræmi við þá verkbeiðni og ábendingar um aðgerðir tóku mið af því,“ segir í yfirlýsingunni.



„Settar voru fram tillögur að fyrstu skrefum í átt að lausn vandans, meðal annars var lagt til að fram færi frekari skoðun á byggingunni, svo sem þakvirki og kjallara. Í framhaldinu var Verkís fengið til að gera úttekt á húsnæðinu.“



Líkt og greint hefur verið frá í fjölmiðlum undanfarna daga hefur leit staðið yfir að húsnæði undir starfsemi Fossvogsskóla síðan mygla fannst í skólanum eftir úttekt Verkíss. Þá fundust einnig rakaskemmdir í húsnæði að Fannborg 2 í Kópavogi, þar sem áætlað var að Fossvogsskóli tæki til starfa, og var því hætt við að flytja starfsemina þangað. Gert er ráð fyrir að tekin verði ákvörðun um húsnæði undir starfsemi skólans í dag.


Tengdar fréttir

Á leið í annað húsnæði sem reyndist vafasamt

Börn í Fossvogsskóla fá ekki kennslu í Kópavogi frá og með mánudegi eins og tilkynnt var. Þar reyndust rakaskemmdir sem er einmitt það ástand sem verið er að flýja í Fossvogi. Tíðindin valda miklum vonbrigðum segir skólastjórinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×