Sport

Till og Askren hófu stríðið í London í gær | Myndbönd

Henry Birgir Gunnarsson í London skrifar
Till á vigtinni í gær.
Till á vigtinni í gær. vísir/getty
Veltivigtarkappinn Ben Askren er kominn til London í þeim eina tilgangi að æsa upp þá Darren Till og Jorge Masvidal. Þá aðallega Till sem hann byrjaði að æsa upp fyrir löngu síðan

Íþróttadeild spjallaði við Till fyrr í vikunni og spurði hann að sjálfsögðu út í rifrildið við Askren sem aðallega fer fram á Twitter.

„Ef hann hefur eitthvað að segja getur hann sagt það beint í andlitið á mér núna. Við sjáum hvað gerist er við hittumst í vikunni,“ sagði Till og brosti. Greinilegt að hann hefur gaman af þessu.



Klippa: Till um Askren


Í gærkvöldi hittust þeir svo í fyrsta skipti á vigtuninni í O2 Arena. Ofanritaður var staddur baksviðs allt kvöldið og fékk að sjá það sem gekk á.

Askren var mættur á undan Till í húsið. Er Liverpool-maðurinn Till kom í húsið mátti sjá að hann var að leita að Askren í salnum. Hann stoppaði og benti beint á hann. Askren var í símanum en stöðvaði símtalið til þess að segja Till að hann liti illa út. Till hló bara og fór upp í stúku.

Nokkrum mínútum síðar byrjaði fjörið er Askren mætti fram í sal til þess að svara spurningum áhorfenda. Till var enn æstur og vildi gera eitthvað. Hann stakk öryggisverði af og stoppaði rétt hjá sviðinu. Þar gaf hann Askren puttann og sagði honum að fokka sér við mikla hrifningu áhorfenda.

Reyndar einnig Askren sem pakkaði honum saman með því að láta alla syngja nafn Till. Afar klókur náungi Askren. Er Till kom til baka sá ég hann laga buxurnar sínar og hélt því í fyrstu að hann hefði múnað Askren. Það reyndist ekki vera rétt.





Hér að ofan má sjá er Till ryðst inn í salinn og er hent út af sjálfum Security Steve.

Askren vill sigurvegarann úr bardaga Till og Masvidal næst en aðallega vill hann berjast við Till. Það mun verða af því.

Gunnar Nelson berst við Bretann Leon Edwards í London í kvöld. Bardaginn er í beinni á Stöð 2 Sport. Vísir er í London og mun fylgjast ítarlega með öllu í aðdraganda bardagans sem og bardaganum sjálfum.

MMA

Tengdar fréttir

Till: Ætla að eyða sál Masvidal

Jorge Masvidal og Darren Till kunna að rífa kjaft. Masvidal segist vilja kýla Till í andlitið en Englendingurinn lætur ekkert minna duga en að eyða sál Masvidal.

Fimmta lotan: Masvidal er gufuruglaður

Henry Birgir Gunnarsson og Pétur Marinó Jónsson heilsa úr Fimmtu lotunni frá London að þessu sinni þar sem þeir hafa fylgst vel með öllu í aðdraganda bardaga Gunnars Nelson og Leon Edwards.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×