Handbolti

Helena skoraði í sigri

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Helena Rut í leik með íslenska landsliðinu
Helena Rut í leik með íslenska landsliðinu vísir/ernir
Helena Rut Örvarsdóttir og stöllur í franska liðinu Dijon unnu tveggja marka sigur á St Amand í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Helena Rut skoraði 1 mark í 31-29 sigri Dijon.

Heimakonur byrjuðu leikinn betur og komu sér upp ágætri forystu í snemma í leiknum. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 19-15 fyrir Dijon.

Gestirnir náðu aldrei að jafna leikinn og fór svo að Dijon vann með tveimur mörkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×