Golf

Rahm leiðir fyrir lokadaginn eftir frábæran dag

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jon Rahm
Jon Rahm vísir/getty
Jon Rahm tók efsta sætið af Tommy Fleetwood og Rory McIlroy á þriðja degi Players-mótsins sem er hluti af PGA mótaröðinni í golfi.

Rahm átti stórkostlegan hring í dag, besta hring allra á þessum þriðja og næst síðasta degi mótsins. Hann fór völlinn á átta höggum undir pari.

Hann fékk einn skolla, á 6. holu, en hann missteig sig ekki meir, fékk sjö fugla og örn á elleftu holu.

Rahm er samtals í mótinu á 15 höggum undir pari og er höggi á undan Fleetwood og McIlroy sem voru í forystu fyrir daginn í dag.

Hvorugur þeirra náði að komast á almennilegt flug í dag, þeir fóru hringinn á tveimur höggum undir pari.

Tiger Woods féll niður töfluna en hann fór hringinn í dag á pari. Hann byrjaði hringinn illa, fékk tvo skolla í röð á annari og þriðju holu og kláraði fyrri níu með skolla á áttundu holu.

Seinni níu voru betri og hann náði þremur fuglum og endaði á pari. Sautjánda holan, sem fór svo illa með Woods í gær, bjargaði málunum í dag þar sem Woods náði í fugl. Hann er nú í 43. sæti.

Síðasti hringurinn fer svo fram á morgun og það er um mikið að keppa þar sem verðlaunaféð á mótinu er það hæsta af öllum mótum PGA mótaraðarinnar í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×