Sport

Edwards: Sagði við alla að ég ætlaði að taka Gunnar í gólfið

Henry Birgir Gunnarsson í London skrifar
Edwards eftir bardagann í kvöld.
Edwards eftir bardagann í kvöld.
Bretinn Leon Edwards var eðlilega brosmildur er hann hitti Vísi í O2 Arena í kvöld enda var hann að vinna risasigur á Gunnari Nelson. Sjöundi sigurinn hans í röð.

„Ég vissi alveg að Gunnar kæmi og reyndi að glíma mig niður. Ég sagði við alla í þessari viku að ég ætlaði að taka hann í gólfið,“ sagði Edwards og brosti en hann stóð heldur betur við það.

„Gunnar er ekki bara einn besti glímumaðurinn í veltivigtinni heldur í UFC í heild sinni. Það er stórt fyrir mig að standa mig svona vel gegn honum í glímunni þegar fólk vill bara kalla mig boxara.“

Edwards segir að það hefði verið betra ef hann hefði náð að klára Gunnar eins og hann stefndi að en var samt sáttur.

„Ég nældi í sigurinn og er búinn að vinna sjö í röð. Mér finnst ég eiga skilið einhvern í topp fimm,“ sagði Edwards en hvernig náði hann Gunnari niður í annarri lotu?

„Ég var vel undirbúinn og vissi að þegar Gunnar fer úr „clinchinu“ að þá detta hendurnar á honum niður. Ég vissi að þar var sóknarfæri og ég hitti hann mjög vel með þessum olnboga.“

Edwards hafði engar áhyggjur þegar Gunnar náði yfirburðastöðu undir lok bardagans.

„Ég held að það hafi verið svona mínúta eftir. Tækni Gunnars gengur út á að að fara úr þessari stöðu og komast í bak andstæðingsins. Ég mátti því ekki fara úr stöðunni,“ segir Bretinn en landar hans virðast ekki halda mikið upp á hann. Gunnar átti húsið og fáir á bandi Edwards sem þó var á heimavelli.

„Ég veit ekki af hverju. Ég held þetta hafi meira snúist um Darren Till og Liverpool í kvöld. Mér er skítsama um þetta.“



Klippa: Leon Edwards eftir bardagann gegn Gunnari
MMA

Tengdar fréttir

Gunnar Nelson: Þetta er glatað

Gunnar Nelson var eðlilega svekktur þegar Vísir hitti hann beint eftir tapið gegn Leon Edwards í London í kvöld.

Svona var bardagakvöldið í London

Gunnar Nelson þurfti að sætta sig við tap gegn Leon Edwards eftir dómaraákvörðun með minnsta mun á UFC bardagakvöldinu í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×