Erlent

Nýsjálenskum flugvelli lokað vegna grunsamlegs pakka

Andri Eysteinsson skrifar
Nýsjálenskum flugvelli var lokað í morgun vegna grunsamlegs pakka sem fannst.
Nýsjálenskum flugvelli var lokað í morgun vegna grunsamlegs pakka sem fannst. EPA/EFE
Dunedin alþjóðaflugvellinum á Suðurey Nýja-Sjálands var lokað í dag vegna grunsamlegs pakka sem fannst á flugvellinum. Lögregla var á staðnum og fjarlægði pakkann grunsamlega.

Tveimur innanlandsflugum til Dunedin, frá Auckland annars vegar og Wellington hinsvegar, var snúið við. Frá því greinir Radio New Zealand.

Á föstudaginn, var framin hryðjuverkaárás í borginni Christchurch í Nýja Sjálandi, þar myrti hryðjuverkamaðurinn Brenton Tarrant, fimmtíu múslima í tveimur moskum á meðan að á bænastund stóð.

Ástandið í Nýja Sjálandi er því viðkvæmt og viðbúnaður mikill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×